Skilmálar fyrir tengingu við þinglýsingagátt
Skilmálar fyrir tengingu við þinglýsingagátt
1. Almennt
Hér á eftir fara skilmálar þeir sem gilda um tengingu tölvukerfa þjónustunotenda við vefþjónustu rafrænna þinglýsinga (hér eftir „þinglýsingagáttin“) sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hýsir og þjónustar fyrir sýslumenn sbr. 3. gr. reglugerðar um rafrænar þinglýsingar nr. 360/2019 (hér eftir „reglugerðin“).
Skilmálar þessir eru gefnir út þann 15. mars 2023 og öðlast gildi 30 dögum síðar, í samræmi við fyrri skilmála frá 27. janúar 2021. Skilmálar þessir koma í stað fyrri skilmála vegna aðgengi að vefþjónustu aflýsinga og þinglýsinga dags. 27. janúar 2021.
Skilmálar þessir taka gildi gagnvart þjónustunotanda þegar viðkomandi hefur samþykkt skilmálana.
Með því að samþykkja skilmála þessa lýsir þjónustunotandi því yfir að hann muni framfylgja þeim við framkvæmd rafrænna þinglýsinga.
2. Skilgreiningar
Í skilmálum þessum, þar sem samhengi texta leyfir, skulu eftirfarandi hugtök skilgreind með þeim hætti sem hér segir:
Þjónustuveitandi vefþjónustu: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Þjónustuveitandi þinglýsinga: Embætti sýslumanna.
Þjónustunotandi: Samheiti yfir aðila sem hafa aðgang að vefþjónustu þinglýsingagáttar, á grundvelli áður framlagðrar umsóknar skv. 3. gr. reglugerðar nr. 360/2019 um rafrænar þinglýsingar. Þegar vísað er til þjónstunotanda í skilmálum þessum er ýmist átt við aflýsingar- og/eða þinglýsingarbeiðanda eða þann sem hefur vegna stöðu sinnar heimild til að hafa milligöngu fyrir slíka beiðendur um aflýsingu og þinglýsingu með rafrænni færslu.
Þinglýsingagátt: Samnefni vefþjónustu rafrænna aflýsinga og þinglýsinga.
Tæknilýsing þinglýsingagáttar: Í tæknilýsingu er kveðið á um tæknilega kröfulýsingu vegna rafrænna þinglýsinga. Markmið tæknilýsingar þinglýsingagáttar er að skilgreina gagnatag (e. Data Type) rafrænnar færslu ásamt öðrum kröfum svo sem um gerð, undirritun og varðveislu gagna sem munu berast til þinglýsingar. Tækniuppbygging er grundvöllurinn fyrir framkvæmd rafrænna þinglýsinga og hvernig gögn skuli berast til aflýsingar og þinglýsingar með rafrænum hætti. Útgefandi tæknilýsingar er Stafrænt Ísland, fjármála- og efnahagsráðuneytið, með samþykki dómsmálaráðuneytisins. Nánar er fjallað um tæknilýsingu þinglýsingagáttar í 4. gr. skilmálanna.
3. Aðgangur og gagnasamskipti
Þeir aðilar einir sem tilgreindir eru í 3. gr. reglugerðar nr. 360/2019 um rafrænar þinglýsingar geta sótt um aðgang að vefþjónustunni til þjónustuveitanda vefþjónustunnar.
Þjónustunotandi öðlast rétt til gagnasamskipta við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vegna rafrænna þinglýsinga þegar hann hefur undirgengist skilmála þessa. Rétturinn felur n.t.t. í sér beina tengingu við þinglýsingagáttina en með tengingunni öðlast þjónustunotandi rétt til að tengja eigið skjala-/gagnakerfi við þinglýsingagáttina, í samræmi við tæknilýsingu þinglýsingagáttar, og aflýsa þannig áður innfærðum meginatriðum skjala og/eða þinglýsa meginatriðum skjala með rafrænni færslu sbr. ákvæði þinglýsingalaga nr. 39/1978.
4. Tæknilýsing þinglýsingagáttar
Um lýsingu þinglýsingagáttar vísast til tæknilýsingar þinglýsingagáttar, sem nálgast má hér.
Þinglýsingagáttin framkvæmir prófanir á skilyrðum erinda sem henni berast og er nauðsynlegt að öll samskipti við vefþjónustuna uppfylli kröfur sem má finna í tæknilýsingu þinglýsingagáttar.
Rafrænt ferli aflýsinga og þinglýsinga:
5. Aðgangsstýringar
Þjónustuveitandi vefþjónustu veitir þjónustunotendum aðgang að þinglýsingagáttinni samkvæmt umsókn. Hver þjónustunotandi fær úthlutað einu aðgangsorði.
Á þjónustunotanda hvílir sú skylda að annast og tryggja aðgangsstýringar að þinglýsingagáttinni vegna einstakra notenda sinna og ber hann fulla ábyrgð á aðgangi og allri notkun þeirra starfsmanna sem nýta þinglýsingagáttina í umboði þjónustunotanda.
Aðgerðir eru ávallt framkvæmdar í nafni þjónustunotanda.
Þjónustunotandi skal tilgreina, í umsókn sinni um aðgang að þinglýsingagáttinni, til hvaða kennitalna á hans vegum sé verið að sækja um aðgang fyrir. Er hér haft í huga tilvik þar sem félag hefur yfir að ráða fleiri en einni kennitölu, t.d. í dæmi móður- og dótturfélaga. Við þær aðstæður yrði aðalkennitala fyrirtækisins, eða kennitala móðurfélagsins, skráð sem þjónustunotandi. Kennitölurnar sem eru undir aðalkennitölu fyrirtækisins eða kennitölu móðurfélags eru hver með sinn aðgang og eru við þær aðstæður skráðar aflýsinga- og/eða þinglýsingabeiðendur.
6. Ábyrgð á áreiðanleika upplýsinga
Þinglýsingagáttin tengist opinberum skrám svo unnt sé að staðfesta að skilyrði þinglýsingar séu uppfyllt. Þjónustunotanda er óheimilt að nýta upplýsingarnar í öðrum tilgangi en aflýsingu eða þinglýsingu með rafrænni færslu.
Um ábyrgð á áreiðanleika upplýsinga úr opinberum skrám sem þinglýsingagátt tengist fer samkvæmt viðeigandi sérlögum, stjórnvaldsfyrirmælum og öðrum reglum hverju sinni.
Þjónustunotandi ber ábyrgð á áreiðanleika þeirra upplýsinga sem hann færir í þinglýsingagátt.
7. Gagnkvæm upplýsingaskylda
Verði þjónustunotandi var við misnotkun á þinglýsingagáttinni, eða gögnum henni tengdri, ber honum að tilkynna þjónustuveitanda vefþjónustu um slíkt. Verði hann fyrir tölvuárás eða var við að upplýsingar úr þinglýsingagáttinni komist í hendur óviðkomandi aðila eða ef grunur vaknar um að slík atvik hafi orðið eða séu yfirvofandi ber honum jafnframt að tilkynna þjónustuveitanda vefþjónustu um slíkt. Tilkynningar samkvæmt þessari málsgrein skulu sendar á netfangið hms@hms.is án tafa eða um leið og þjónustunotanda er kunnugt um atvikin.
Komi til þess að þjónustunotandi verði var við villur eða önnur vandamál í þinglýsingagáttinni ber honum að upplýsa þjónustuveitanda vefþjónustu um það svo fljótt sem kostur er. Þá ber þjónustunotanda jafnframt að upplýsa þjónustuveitanda vefþjónustu um atvik sem haft geta áhrif á tengingu við þinglýsingagáttina svo sem ef notast er við ný tölvukerfi o.s.frv. Tilkynningar samkvæmt þessari málsgrein skulu sendar á netfangið hms@hms.is.
Þjónustuveitandi vefþjónustu ber að tilkynna þjónustunotanda ef bilanir á þinglýsingagáttinni koma upp eða ef nauðsynlegar uppfærslur eru gerðar á henni sem kunna að hafa áhrif á virkni þinglýsingagáttar. Komi til þess að þinglýsingagáttin liggi niðri af óviðráðanlegum ástæðum mun þjónustuveitandi vefþjónustu jafnframt tilkynna þjónustunotanda um slíkt.
Þjónustunotanda ber í umsókn sinni um aðgang að þinglýsingagáttinni gefa upp tengiliðaupplýsingar í formi almenns netfangs. Komi síðar til breytinga á netfangi þjónustunotanda, ber hann ábyrgð á að upplýsa þjónustuveitanda vefþjónustunnar um nýtt netfang.
Þjónusta þjónustuveitanda vefþjónustu fer almennt fram á skrifstofutíma en verði rof á tengingu við þinglýsingagáttina mun þjónustuveitandi vefþjónustu bregðast við tilkynningu þess efnis eins fljótt og auðið er.
8. Gagnaöryggi
Þjónustunotandi ber ábyrgð á öryggi gagna, sem frá þinglýsingagáttinni eru fengnar og varðveittar eru í kerfum þjónustunotanda. Ábyrgðin tekur m.a. til nauðsynlegs frumkvæðis við framkvæmd aðgerða til að tryggja heilleika gagna sem fengnar eru úr þinglýsingagáttinni, leynd og rekjanleika þeirra í meðferð þjónustunotanda. Þjónustunotandi ábyrgist að hann sjálfur, fyrirsvarsmaður eða starfsmaður á hans vegum sem nýta þinglýsingagáttina samkvæmt aðgangsheimild, hafi kynnt sér efni þessara skilmála og skuldbundið sig til að tryggja öryggi upplýsinganna. Þjónustunotandi ber ábyrgð á að upplýsingarnar komist ekki í hendur óviðkomandi aðila og ber sjálfur ábyrgð á því að stýra aðgengi að þinglýsingagáttinni í sínum kerfum ásamt eftirliti með notkun með vísan til 5. gr. skilmálanna um aðgangsstýringar.
Þjónustunotandi skal samhliða færslu í gegnum þinglýsingagáttina láta upplýsingar um hvaða starfsmaður framkvæmdi aðgerðina fylgja með færslunni, í samræmi við tæknilýsingu þinglýsingargáttar.
9. Ábyrgðir þjónustuveitanda vefþjónustunnar
Þjónustuveitandi vefþjónustunnar ber ekki ábyrgð á tjóni sem rekja má til notkunar sem fer gegn skilmálum þessum, t.d. ef óviðkomandi aðili hefur komist yfir aðgang þjónustunotanda að þinglýsingagáttinni, eða ef þjónustunotanda hefur ekki tekist að tilkynna þjónustuveitanda vefþjónustunnar um misnotkun á þinglýsingagáttinni, eða grun um slíkt í samræmi við 7. gr. um gagnkvæma upplýsingaskyldu.
Þjónustuveitandi vefþjónustunnar ber ekki ábyrgð á tjóni vegna notkunar á þinglýsingagáttinni sem hlýst af vanþekkingu, mistökum eða misnotkun hjá þjónustunotanda. Þá ber þjónustuveitandi vefþjónustunnar ekki ábyrgð á tjóni sem stafar af því að búnaður þjónustunotanda virkar ekki sem skyldi.
Þjónustuveitandi vefþjónustunnar og þjónustuveitandi þinglýsinga bera hvorki beint né óbeint ábyrgð á tjóni sem orsakast af fyrirvaralausri lokun þinglýsingagáttar, t.d. vegna bilana sem rekja má til sambandsleysis, rofi á fjarskiptum eða öðrum truflunum sem kunna að verða á rekstri þinglýsingagáttar og eru ófyrirsjáanlegar eða óhjákvæmilegar vegna óviðráðanlegra aðstæðna (force majure). Leiði framangreindar aðstæður til mistaka, truflana eða tafa á þinglýsingagáttinni, skal ábyrgð þjónustuveitanda vefþjónustunnar takmarkast við að lagfæra slík mistök, truflanir eða tafir, svo fljótt sem auðið er.
10. Ábyrgðir þjónustuveitanda þinglýsinga
Þjónustuveitandi þinglýsinga ber ábyrgð á þjónustu sem snýr að framkvæmd þinglýsinga og aflýsinga í samræmi við þinglýsingalög nr. 39/1978. Með því er m.a. átt við þinglýsingu og aflýsingu samkvæmt rafrænni færslu, afgreiðslu erinda er varða leiðréttingu á þinglýsingabók, svörun fyrirspurna vegna gjaldtöku og framkvæmdar þinglýsingar o.fl. sem fellur undir starfssvið þjónustuveitanda þinglýsinga.
Undir ábyrgð þjónustuveitanda þinglýsinga fellur almennt allt annað en tæknileg þjónusta sem er bundin við þinglýsingagáttina sjálfa og notkun á henni. Enginn greinarmunur er gerður á þjónustunni eftir því á hvaða formi þinglýsingin fer fram. Þjónustunotanda ber að snúa sér til þess embætti þjónustuveitanda þinglýsinga sem ber ábyrgð á framkvæmdinni samkvæmt þinglýsingalögum nr. 39/1978.
11. Ábyrgðir þjónustunotanda
Þjónustunotandi skal halda þjónustuveitanda vefþjónustunnar skaðlausum af hvers konar tjóni sem rekja má til krafna, aðgerða, skaða, ábyrgða, sekta, refsinga og kostnaðar (þ.m.t. lögfræðikostnaði) sem þjónustuveitandi vefþjónustunnar kann að verða fyrir vegna eða í tengslum við aðgerðir eða aðgerðarleysi þjónustunotanda, hvort sem það stafar af vanrækslu, ásetningi eða gáleysi í tengslum við notkun á þinglýsingagáttinni eða sem leiðir af broti gegn skilmálum þessum. Skaðleysisábyrgð þessi takmarkar ekki með neinum hætti önnur samningsbundin eða lögbundin réttindi sem þjónustuveitandi vefþjónustunnar kann að njóta gagnvart þjónustunotanda og hugsanlegar bætur eða skaðleysisgreiðslur réttlæta ekki brot á skilmálum þessum.
Þjónustuveitandi vefþjónustunnar ber eingöngu ábyrgð á tjóni þjónustunotanda ef það má rekja til gáleysis eða ásetnings starfsmanna þjónustuveitanda vefþjónustunnar. Ábyrgð þjónustuveitanda vefþjónustunnar nær í slíku tilviki eingöngu til beins tjóns en aldrei til afleidds tjóns sem verða kann af þessum sökum, s.s. rekstrarstöðvunar, tapaðra viðskipta eða álitshnekkis.
12. Persónuvernd
Þjónustunotandi hefur kynnt sér viðeigandi reglur um notkun upplýsinga, meðal annars ákvæði laga nr. 90/2018, um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, þ.m.t. um meðferð, vinnslu og miðlun upplýsinga og gagna.
Vinnsla persónuupplýsinga skal vera samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga eins og nánar er tilgreint í persónuverndarstefnu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
Þjónustunotandi ber ábyrgð á þeim upplýsingum og gögnum sem hann færir inn í þinglýsingagáttina. Þjónustunotanda ber að tryggja að gögn sem ekki eru ætluð til opinberrar birtingar eða eru bersýnilega óþörf til verndar rétti, svo sem af þeirri ástæðu að þau geti ekki sjálfstætt stofnað, breytt, yfirfært eða lokið rétti eða bundið hann höftum, berist ekki til þinglýsingar með rafrænni færslu. Sama á við um fylgiskjöl með rafrænum færslum sem færð eru inn í þinglýsingargátt. Verði þjónustuveitandi þinglýsinga þess áskynja að gögn hafi borist í gegnum þinglýsingagátt sem eru þinglýsingu óviðkomandi, ber honum að tilkynna þjónustunotanda og þjónustuveitanda vefþjónustunnar.
13. Greiðslur vegna þinglýsinga
Þjónustunotanda ber að greiða þau opinberu gjöld fyrir þinglýsingu með rafrænni færslu sem ákveðin eru hverju sinni samkvæmt lögum um aukatekjur ríkissjóðs og lögum um stimpilgjald.
Samkvæmt 4. gr. þinglýsingalaga nr. 39/1978 og 10. gr. reglugerðar nr. 360/2019 um rafrænar þinglýsingar, ber að greiða þinglýsingagjald hjá hverju embætti sé rafræn færsla dagbókarfærð hjá fleiri en einum þjónustuveitanda þinglýsinga. Þinglýsingagáttin reiknar því næst út samanlögð gjöld sem viðkomandi þjónustunotanda ber að greiða fyrir þinglýsinguna. Greiðslur vegna rafrænna þinglýsinga skulu fara fram samdægurs en eindagi er tveimur virkum dögum síðar. Hafi þjónustunotandi ekki greitt innan þess frests sem mælt er fyrir um í reglugerðinni, ber þjónustuveitanda vefþjónustunnar að loka fyrir aðgang viðkomandi þjónustunotanda að þinglýsingagáttinni þar til viðskiptaskuld hefur verið greidd að fullu. Aðal kennitala þjónustunotanda, samkvæmt umsókn að þinglýsingagáttinni, er sú sem er skráður greiðandi, sbr. 5. gr. þessara skilmála.
14. Framsal og fjölgun notenda
Þjónustunotanda er óheimilt að framselja að hluta eða fullu réttindi sín eða skyldur samkvæmt skilmálum þessum, nema að fengnu skriflegu samþykki þjónustuveitanda vefþjónustunnar. Þá er þjónustunotanda jafnframt óheimilt að fjölga kennitölum á sínum aðgangi frá því sem gefið var upp í umsókn um aðgang að þinglýsingagáttinni, nema með samþykki þjónustuveitanda vefþjónustunnar, sbr. 5. gr. þessara skilmála.
15. Breytingar á skilmálum
Þjónustuveitandi vefþjónustu áskilur sér einhliða rétt til að gera breytingar á skilmálum þessum og skulu þær tilkynntar þjónustunotanda í rafrænni tilkynningu með að minnsta kosti 30 daga fyrirvara sem send skal til þjónustunotanda með sannanlegum hætti áður en ný eða breytt ákvæði taka gildi. Auk þess eru nýir eða uppfærðir skilmálar birtir á heimasíðu þjónustuveitenda vefþjónustu.
Þjónustuveitanda vefþjónustu er þó heimilt að gera breytingar á skilmálum með skemmri fyrirvara ef slíkar breytingar á skilmálum eru nauðsynlegar samkvæmt lögum. Í slíkum tilvikum þar sem fyrirvarinn kann að vera skemmri skal þjónustuveitandi vefþjónustu leitast við að tilkynna þjónustunotendum um breytingarnar eins fljótt og auðið er.
16. Brot gegn skilmálum
Verði þjónustunotandi uppvís að því að brjóta gegn skilmálum þessum eða misnota þinglýsingagáttina á annan hátt, eða ljóst þykir að hann getur hvorki né ætlar að uppfylla ákvæði þessara skilmála er þjónustuveitanda vefþjónustunnar hvenær sem er, og án fyrirvara, heimilt að loka á aðgang viðkomandi þjónustunotanda. Komi til þess skal þjónustuveitandi vefþjónustunnar senda viðkomandi þjónustunotanda tilkynningu þess efnis með sannanlegum hætti ásamt því að upplýsa þjónustuveitanda þinglýsinga um lokunina og ástæður hennar.
Til viðbótar getur þjónustuveitandi vefþjónustunnar lokað á aðgang þjónustunotanda ef hann vanrækir skyldur sínar eða brýtur gegn skilmálum þessum. Ber þar helst að nefna eftirfarandi tilvik:
- Þjónustunotandi nýtir þinglýsingagáttina með öðrum hætti en lýst er í skilmálum þessum eða lög áskilja, sbr. 6. og 12. gr. skilmálanna.
- Þjónustunotandi verður uppvís að vanrækslu upplýsingaskyldu sinnar samkvæmt 7. gr. skilmálanna.
- Þjónustunotandi greiðir ekki gjaldfallna reikninga vegna þinglýsinga innan 15 daga frá eindaga, sbr. 13. gr. skilmálanna.
- Þjónustunotanda er veitt heimild til greiðslustöðvunar, hann fær heimild til að leita nauðasamninga eða bú hans hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta.