Safety Gate eft­ir­lits­kerf­ið

Safety Gate eft­ir­lits­kerf­ið

Safety Gate kerfið er vöruöryggiskerfi á EES svæðinu fyrir allar vörur nema lyf og matvæli. Kerfið miðlar upplýsingum um hættulegar vörur til almennings og eftirlitsstofnanna.  Á hverjum degi bætast vörur inn í Safety Gate kerfið frá markaðseftirlitsstofnunum á EES svæðinu.

Aðgangur að Safety Gate tilkynningakerfinu er öllum opinn og hægt er að leita að tilkynntum vörum í leitarvél kerfisins eða skrá sig á póstlista og fá senda vikulega skýrslu sem hægt er að sníða eftir eigin þörfum. Þannig er t.d. hægt að fá senda skýrslu yfir hættuleg leikföng sem finnast á Norðurlöndunum þá vikuna.  Þegar tilkynnt vara finnst á Íslandi þarf að bregðast  tafarlaust við í samráði við viðeigandi markaðseftirlitsstjórnvald. Fyrirtæki ættu að koma sér upp innköllunaráætlun sem innifelur í sér skipulagða verkferla komi til innköllunar.  Hérna má nálgast bækling um hvað innköllunaráætlun ætti að fela í sér.

Markaðseftirlit Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar hefur umsjón með Safety Gate kerfinu á Íslandi.