Um Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Um Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Um Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Um Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

HMS hlaut jafnlaunavottun sem byggist á Jafnlaunastaðlinum ÍST 85:2012 árið 2024 og gildir til 2027. Jafnlaunavottuninni hefur verið viðhaldið og fer viðhaldsvottun fram í janúar ár hvert, síðast í janúar 2024. Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.

Það er markmið með jafnlaunastefnu HMS að allt starfsfólk stofnunarinnar hafi jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf þannig að enginn ómálefnalegur launamunur sé til staðar á vinnustaðnum sem og þau réttindi sem eru tilgreind í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020 sem tóku gildi 29. desember 2020.

Hjá HMS er það kappsmál að við launaákvarðanir sé ekki mismunað á grundvelli kyns, aldurs, uppruna eða annarra þátta.

Gildistími og endurskoðun

Jafnlaunastefna þessi var samþykkt af stjórn HMS þann 20.01.2023 og verður endur­skoðuð innan þriggja  ára.