Um Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Um Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Um Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Um Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Um Hús­næð­is-, mann­virkja- og skipu­lags­stofn­un

Um Hús­næð­is-, mann­virkja- og skipu­lags­stofn­un

Um Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) er sjálfstæð stofnun sem lýtur sérstakri stjórn og heyrir stjórnarfarslega undir félags- og húsnæðismálaráðherra.

Stofnunin starfar að stjórnsýsluverkefnum á sviði húsnæðismála, mannvirkjamála, skipulagsmála, rafmagnsöryggismála og brunavarna, fer með samhæfingarhlutverk opinberrar markaðsgæslu, og rekur fasteignaskrá ásamt því að sinna verkefnum því tengdu.

Hlut­verk

  • Skynsamlegri nýtingu landgæða og þróun byggðar sem stuðli að lífsgæðum fólks í sátt við samfélag og umhverfi
  • Réttleika skráningar fasteigna, áreiðanlegu fasteigna- og brunabótamati og yfirsýn yfir eignarhald og afmörkun fasteigna
  • Stöðuleika, greiningum og virkni á húsnæðismarkaði og aðgengi almennings að viðunandi húsnæði
  • Samhæfðu eftirliti og fræðslu, skilvirkni og rannsóknum í mannvirkjagerð, brunavörnum, rafmagnsöryggi og með vörum á markaði

Fram­tíð­ar­sýn

  • Áætlanir til langs tíma með áherslu á skynsemi í landnýtingu, fyrirsjáanleika í uppbyggingu, sjálfbærni og nýtingu auðlinda
  • Einfalt aðgengi að þjónustu og upplýsingum með snjöllum lausnum

Ársskýrsla HMS 2023

HMS er sjálfstæð stofnun sem lýtur sérstakri stjórn og heyrir stjórnarfarslega undir innviðaráðherra. Stofnunin starfar að stjórnsýsluverkefnum á sviði húsnæðis - mála, mannvirkjamála, rafmagnsöryggismála og brunavarna, fer með samhæfingarhlutverk opinberrar markaðsgæslu og rekur fasteignaskrá ásamt því að sinna tengdum verkefnum, svo sem nánar er kveðið á um í lögum nr. 137/2019 um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Opna ársskýrslu 2023