Gjöld og kostn­að­ur í inn­heimtu­ferli

Gjöld og kostn­að­ur í inn­heimtu­ferli

Mikilvægt er að vinna strax að leiðum til að leysa greiðsluvanda því dráttarvextir og gjöld falla á lán sem er í innheimtuferli.

Dráttarvextir reiknast á ógreidda kröfu frá gjalddaga og fram að greiðsludegi.

Gjöld leggjast ofan á reglulega greiðslu afborgana, vaxta og verðbóta af láninu. Eftir því sem lengra er liðið á innheimtuferlið aukast þau gjöld sem leggjast ofan á lánið. Það eru því ríkir hagsmunir hjá skuldara að leita greiðslurúrræða eins fljótt í ferlinu og hægt er.

Gjaldskrá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar