21. október 2026

Vísitala leiguverðs lækkaði um 0,92 prósent í september 2026

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Vísitala leiguverðs lækkaði annan mánuðinn í röð
  • Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hefur nú lækkað um 2,6% að raunvirði síðastliðið ár
  • Raunlækkun leiguverðs á ársgrundvelli hefur ekki mælst meiri síðan á vormánuðum 2023 þegar verðbólga stóð í tæpum 10%

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 129 stig í september og lækkaði um 0,92 prósent á milli mánaða. Þetta er annar mánuðurinn í röð sem vísitalan lækkar á milli mánaða, en hún mælist nú 1,07 prósent lægri en í júlí síðastliðnum þar sem vísitalan lækkaði um 0,15 prósent á milli mánaða í ágúst.

Á meðfylgjandi mynd má sjá mánaðarlega breytingu á vísitölu leiguverðs ásamt gildum hennar síðustu 12 mánuði.

Vísitala leiguverðs byggir á vegnu meðaltali leiguverðs á fermetra hjá hefðbundnum íbúðum í eigu einstaklinga og hagnaðardrifinna leigufélaga á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstöður eru vegnar saman með veltu íbúða með sama herbergjafjölda á síðustu 12 mánuðum. Stuðst er við leigusamninga síðastliðinna tveggja mánaða við útreikning vísitölunnar, svo septembergildi hennar tekur mið af leigusamningum í ágúst og september.

Áfram dreg­ur úr verð­þrýst­ingi á leigu­mark­aði

Á síðastliðnum 12 mánuðum hefur vísitalan nú hækkað um 3,2 prósent á sama tíma og verðbólga mældist 5,9 prósent og íbúðaverð hækkaði um 1,8 prósent. Vísitala leiguverðs hefur því lækkað um 2,6 prósent að raunvirði síðastliðið ár, en árstakturinn er enn nokkuð hærri en fyrir  vísitölu íbúðaverðs.

Áfram hægir því á verðhækkunum á leigumarkaði á höfuðborgarsvæðinu. Líkt og sjá má á myndinni hér að ofan hefur tólf mánaða takturinn farið lækkandi síðan á sumarmánuðum ársins 2024. Raunlækkun leiguverðs á ársgrundvelli hefur jafnframt ekki mælst meiri síðan á vormánuðum 2023 þegar verðbólga stóð í tæpum 10 prósent.

Mæla­borð fyr­ir vísi­töl­ur HMS

Mælaborð fyrir vísitölur HMS um íbúða- og leiguverð er aðgengilegt á vef HMS. Þar er hægt að nálgast þróun vísitölu leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu, auk þess er hægt að nálgast eldri og sameinaðar vísitölur leiguverðs. Tilgangur leiguvísitölunnar er að endurspegla þróun á markaðsvirði leigu en vísitalan er ekki ætluð til vísitölubindingar á leigusamningum.  

Mælaborð fyrir vísitölur HMS

Nýr póstlisti hag­deild­ar HMS

Hagdeild HMS hefur útbúið nýjan póstlista fyrir alla sem vilja fylgjast með húsnæðismálum. Áskrifendur póstlistans munu fá helstu greiningar sendar til sín úr mánaðarskýrslum HMS, ásamt tilfallandi greiningum um fasteigna-, leigu-, lána- og byggingarmarkaðinn og auglýsingum um komandi viðburði.

Hægt er að skrá sig á póstlistann með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.

Póstlisti hagdeildar HMS

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS