20. desember 2024
17. júlí 2024
Vísitala leiguverðs hækkaði um 2,5 prósent í júní
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Leiguverð heldur áfram að hækka í júní
- Vísitala leiguverðs hefur hækkað talsvert umfram verðbólgu og íbúðaverð á síðastliðnu ári
- Verðhækkanir nokkuð jafnar eftir herbergjafjölda leiguíbúða
Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 116,1 stig í júní 2024 og hækkaði um 2,5 prósent á milli mánaða. Á ársgrundvelli hefur vísitala leiguverðs hækkað um 13 prósent frá því í júní í fyrra á sama tíma og verðbólga mældist 5,8 prósent og vísitala íbúðaverðs hækkaði um 9,1 prósent. Á síðastliðnu ári hefur leiguverð því hækkað talsvert umfram bæði almennt verðlag og hækkun íbúðaverðs.
Þróun leiguvísitölunnar frá maímánuði 2023 má sjá á mynd hér að neðan. Einnig er hægt að nálgast eldri og sameinaðar vísitölur HMS á hms.is/visitolur.
Vísitala leiguverðs heldur áfram að hækka milli mánaða í júní þó hækkunin sé minni en í maí þegar vísitalan hækkaði um 3,2 prósent. Það sem af er ári hefur vísitalan hækkað um 9,6 prósent sem jafngildir tæplega 25 prósent hækkun á ársgrundvelli.
Á meðfylgjandi mynd má sjá miðgildi fermetraverðs eftir herbergjafjölda leiguíbúða á höfuðborgarsvæðinu á undanförnum 12 mánuðum. Myndin sýnir að verð hefur hækkað nokkuð jafnt meðal tveggja, þriggja og fjögurra herbergja leiguíbúða. Á síðustu 12 mánuðum hafa tveggja herbergja leiguíbúðir hækkað um 15,7 prósent, þriggja herbergja um 12,7 prósent og fjögurra herbergja um 17 prósent sé miðað við miðgildi fermetraverðs.
Í janúar síðastliðnum tók HMS nýja vísitölu leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu í notkun, en fyrsti útreikningur hennar miðast við maí 2023 og er gildi hennar þá 100. Leiguvísitalan sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Byggt er á leigusamningum um hefðbundnar íbúðir sem eru í eigu einstaklinga og fyrirtækja sem rekin eru í hagnaðarskyni. Reiknað er meðalfermetraverð í 6 flokkum eftir herbergjafjölda og niðurstöður vegnar saman með veltu síðustu 12 mánaða. Stuðst er við leigusamninga síðastliðinna tveggja mánaða við útreikning vísitölunnar, svo júnígildi hennar tekur mið af leigusamningum í maí og júní.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS