25. september 2026
25. september 2026
Vísbendingar um að fleiri sitji fastir á leigumarkaði
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Meðaltími á leigumarkaði hefur lengst undanfarin ár og fleiri leigja af nauðsyn
- Vísbendingar eru þó um aukið framboð af leiguhúsnæði samhliða minni verðþrýstingi ef miðað er við síðasta ár
- Leigjendur af erlendum uppruna leigja oftar herbergi, deiliíbúðir, bílskúra og atvinnuhúsnæði heldur en leigjendur af íslenskum uppruna
Vísbendingar eru um að fleiri sitji fastir á leigumarkaði þar sem meðaltími á leigumarkaði hefur lengst og hlutfall þeirra sem leigja af nauðsyn hefur hækkað. Framboð leiguhúsnæðis hefur þó aukist á sama tíma og hægt hefur á verðhækkunum á markaðnum undanfarin ár. Merki eru um að leigjendur af erlendum uppruna búi við lakari húsnæðisaðstæður en leigjendur af íslenskum uppruna.
Þetta er á meðal þess sem lesa má úr niðurstöðum nýrrar leigumarkaðskönnunar sem Prósent framkvæmdi fyrir hönd HMS nú undir lok sumars. Ítarlegri umfjöllun og greiningar á niðurstöðum verða birtar í næstu viku.
Færri sjá fram á að komast af leigumarkaði
Meðaltími leigjenda á leigumarkaði hefur lengst jafnt og þétt á undanförnum árum. Hann mælist nú 12 ár en var um 7 ár árið 2020. Á sama tíma hefur hlutfall þeirra sem leigja af nauðsyn hækkað úr 64% upp í 77% á meðan þeim sem vilja vera á leigumarkaði hefur fækkað úr tæplega 30% niður í um 12%. Þessi þróun gefur vísbendingar um að hópur þeirra sem situr fastur á leigumarkaði hafi stækkað undanfarin ár.
Niðurstöður könnunarinnar bera jafnframt merki þess að aukinnar svartsýni gæti meðal leigjenda. Fleiri leigjendur eru nú að safna fyrir útborgun en færri sjá þó fram á að komast af leigumarkaði.
Líkt og sjá má á myndinni hér að ofan telur rúmlega helmingur leigjenda ólíklegt að komast nokkurn tímann af leigumarkaði, eða 53%. Það er talsverð fjölgun frá því í fyrri könnun þegar rétt rúmlega 40% töldu ólíklegt að komast af leigumarkaði yfir höfuð. Á sama tíma hefur fækkað í hópi þeirra sem telja sig munu fara af leigumarkaði á næstu fimm árum.
Framboð af leiguhúsnæði hefur aukist og verðþrýstingur minnkað
Leigjendur telja framboð af hentugu íbúðarhúsnæði til leigu vera lítið hér á landi, en samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar hefur það þó aukist lítillega á undanförnum árum. Helmingur svarenda telur að framboð af íbúðum til leigu muni standa í stað á næstu 12 mánuðum en tæplega fjórðungur telur að það muni aukast aðeins.
Á sama tíma og framboð hefur aukist hefur verðþrýstingur á leigumarkaði minnkað líkt og þróun vísitölu leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu ber með sér. Leiguverð hefur að mestu staðið í stað að raunvirði síðustu mánuði en árshækkun leiguverðs hefur að jafnaði verið um 5,2% það sem af er ári, samanborið við um 8% árið 2025 og 12% árið 2024. Leigjendur vænta þess flestir að leiguverð haldi áfram að hækka á næstu 12 mánuðum, þó fleiri telji það munu standa í stað heldur en í síðustu könnun.
Aðfluttir leigjendur búa við lakari húsnæðisaðstæður
Niðurstöður leigumarkaðskönnunarinnar benda til þess að leigjendur af erlendum uppruna séu líklegri en leigjendur af íslenskum uppruna til þess að leigja herbergi, bílskúra, deilihúsnæði (með sameiginlegu eldhúsi eða alrými), aukaíbúðir í einbýlishúsum, atvinnuhúsnæði eða annars konar húsnæði.
HMS fjallaði ítarlega um húsnæðisaðstæður aðfluttra í skýrslu sem kom út í september 2025 og byggði á spurningakönnun sem lögð var fyrir félagsmenn stéttarfélaganna Eflingar, VR og Einingar-Iðju. Í þeirri skýrslu kom meðal annars fram að næstum þrír af hverjum fjórum aðfluttum séu á leigumarkaði.
Nánar verður fjallað um stöðu íslenskra og erlendra leigjenda í ítarlegri umfjöllun um niðurstöður leigumarkaðskönnunarinnar sem birt verður í næstu viku.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




