19. október 2020

Virkni á íbúðamarkaði ekki jafnmikil síðan 2007

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Í september voru gefnir út 1.307 kaupsamningar vegna íbúðarhúsnæðis samkvæmt nýjum tölum Þjóðskrár og hefur slíkur fjöldi einungis sést tvisvar áður og var það í maí og júní 2007 þegar fasteignamarkaðurinn var í hæstu hæðum. Gögn um kaupsamninga eru birt með töluverðri töf þar sem þau eru ekki gefin út fyrr en eftir þinglýsingu og oft tekur margar vikur að þinglýsa skjölum. Með því að birta eftir útgáfudegi fremur en þinglýsingardegi má komast hjá þeirri skekkju sem kemur til vegna mislangs afgreiðslutíma þinglýsinga. Á hinn bóginn getur  fjöldinn verið vantalinn, sérstaklega fyrir síðustu mánuði, þar sem samningarnir koma ekki fram í tölunum fyrr en eftir að þeim hefur verið þinglýst. Tölurnar fyrir síðustu mánuði, og þá sérstaklega fyrir september gætu því átt eftir að hækka enn frekar. Myndin hér að neðan sýnir fjölda kaupsamninga eftir útgáfudegi. 

Á höfuðborgarsvæðinu voru gefnir út 882 kaupsamningar um íbúðarhúsnæði í september en á landsbyggðinni voru þeir 425 sem er  - áðum tilfellum mesti fjöldi síðan fyrir efnahagshrunið 2008. Á höfuðborgarsvæðinu hefur fjöldi kaupsamninga að mestu verið í takt við fjölda íbúða sem tekinn hefur verið úr birtingu á fasteignir.is, en hagdeild HMS hefur reglulega fjallað um þann mælikvarða frá því í júlí síðastliðnum. Sá mælikvarði gefur góða mynd af fjölda kaupsamninga nánast án tafar og því er hægt að meta umsvifin á fasteignamarkaði með tímanlegri hætti en áður. 

Á landsbyggðinni hefur hins vegar dregið í sundur á milli þessara stærða en þrátt fyrir sögulega mikil viðskipti var meiri aukning í fjölda íbúða sem teknar voru úr sölu en fjöldi þinglýstra kaupsamninga. Ástæður þess eru óljósar. Mögulega hefur tilfellum fjölgað þar sem að hætt hefur verið við sölu íbúða t.d. vegna ástands á vinnumarkaði en einnig getur verið að enn sé nokkuð af kaupsamningum sem búið er að gefa út en eiga eftir að skila sér í gegnum þinglýsingarferlið.