15. maí 2025
29. apríl 2025
Uppbygging í takt við mikla fjölgun íbúa í Reykjanesbæ
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Spáð er að íbúum fjölgi um 2.688 næstu fimm árin, sem jafngildir um 11,4% fólksfjölgun
- Áætlað að þörf verði fyrir 2.000 nýjar íbúðir á næstu 10 árum
- Sveitarfélagið stefnir að úthlutun lóða fyrir allt að 3.833 íbúðir til að tryggja nægt framboð nýrra íbúða á næstu árum
Reykjanesbær hefur samþykkt endurskoðaða húsnæðisáætlun fyrir árið 2025. Þar er gert ráð fyrir að íbúum sveitarfélagains muni fjölga um 5.401 manns á næstu tíu árum, sem samsvarar um 23,1% fjölgun. Til samanburðar hefur íbúum fjölgað um 20% á síðustu 5 árum og um 53,5% síðastliðin 10 ár samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands.
Athygli vekur að nærri 29% af allri fólksfjölgun í Reykjanesbæ á síðustu tíu árum átti sér stað á árinu 2022 einu. Þessa miklu fjölgun má að hluta rekja til jarðhræringa og rýminga í Grindavík sem leiddu til búferlaflutninga. Talsvert hefur verið um fólksflutning frá Grindavík yfir í Reykjanesbæ frá því jarðhræringarnar hófust árið 2021.
Þörf fyrir 2.000 nýjar íbúðir á næstu 10 árum
Samkvæmt húsnæðisáætlun Reykjanesbæjar er áætlað að þörf verið fyrir um 215 nýjar íbúðir á ári, eða samtals 1.071 á næstu fimm árum og 2.152 á næstu tíu árum. Uppbygging í sveitarfélaginu hefur verið öflug síðustu ár og fjölgaði fullbúnum íbúðum að meðaltali um 129 á ári ef litið er til síðustu 10 ára en um 151 á ári síðustu fimm árin.
Uppbygging eykst í takt við áætlaða þörf
Samkvæmt nýjustu tölum HMS voru 444 íbúðir í byggingu í Reykjanesbæ í mars 2025, sem er 74 íbúðum fleiri en á sama tíma í fyrra. Myndin hér að neðan sýnir að flestar íbúðir eru á framvindustigi 4 (fokheldi) eða 46,6% allra íbúða í byggingu. Talsverður fjöldi er þó einnig á stigum 2 (undirstöður tilbúnar) og 3 (burðarvirki reist).
Fjöldi íbúða sem nú eru í byggingu dugar til að mæta þeirri þörf sem sveitarfélagið gerir ráð fyrir á næstu tveimur árum.
Framtíðarsýn Reykjanesbæjar
Reykjanesbær hefur mótað skýra stefnu um fjölbreytta og félagslega ábyrga íbúðauppbyggingu. Markmið stefnunnar er að tryggja öllum íbúum bæjarins öruggt og viðeigandi húsnæði, óháð tekjum, eignaformi eða félagslegri stöðu. Bæjarfélagið styður sérstaklega við uppbyggingu almennra íbúða, það er leiguíbúða sem byggðar eru með opinberum stuðningi og ætlaðar einstaklingum og fjölskyldum sem falla undir ákveðin tekju- og eignamörk. Til að ná því markmiði nýtir Reykjanesbær stofnframlög frá HMS og vinnur í nánu samstarfi við húsnæðissjálfseignarstofnanir, meðal annars Bjarg íbúðafélag.
Auk þess vinnur bæjarfélagið að því að bæta húsnæðisúrræði fyrir viðkvæma hópa. Unnið er að sértækum lausnum fyrir fatlaða, aldraða og heimilislausa, þar á meðal þróun smáhýsa fyrir einstaklinga með fjölþættar þjónustuþarfir.
Til að styðja við áframhaldandi þróun íbúðamarkaðarins og mæta þörfum fjölbreyttra hópa leggur Reykjanesbær sérstaka áherslu á að tryggja nægilegt framboð byggingarlóða. Jafnframt er lögð áhersla á að sníða íbúðasamsetningu að sérstöðu einstakra hverfa og taka mið af væntanlegri fjölgun íbúa. Unnið er að skipulagi nýrra íbúðasvæða í hverfum á borð við Dalshverfi 2 og 3, Ásbrú og Efra Hlíðarhverfi.
Lóðaframboð styður við uppbyggingu næstu 10 ára
Reykjanesbær hefur nú skipulagt lóðir fyrir 3.833 íbúðir á næstu 10 árum sem eru nærri helmingi fleiri íbúðir en áætlað er að þörf verði fyrir. Lóðaframboð ætti því að mæta vel áætlaðri íbúðaþörf gangi mannfjöldaspá og úthlutunaráætlanir sveitarfélagsins eftir.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS