22. nóvember 2024
22. nóvember 2024
Umsóknarviðmót byggingarleyfa á Reykjanesi komið í loftið
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Fyrsta útgáfa nýs stafræns umsóknarviðmóts HMS fyrir byggingarleyfi á Íslandi er komin í loftið og er það sveitarfélagið Reykjanesbær sem hefur nú tekið á móti sinni fyrstu formlegu umsókn um byggingarleyfi með þessum hætti. Þetta mikilvæga skref er það fyrsta í vegferðinni að samræma og einfalda umsókn og útgáfu byggingarleyfa hjá öllum sveitarfélögum á landinu og stuðla að vandaðri mannvirkjagerð til framtíðar.
Reykjanesbær er fyrst sveitarfélaga á landinu í innleiðingu umsóknarviðmótsins en nú þegar er hafin samvinna og undirbúningur hjá fleiri sveitarfélögum um innleiðingu. Fyrst um sinn verður einungis hægt að sækja um byggingarleyfi hjá Reykjanesbæ með þessum hætti. Nánari upplýsingar um verkefnið og helstu áherslur má sjá í meðfylgjandi myndbandi.
Gríðarlegur ávinningur fæst strax með fyrstu útgáfu umsóknarviðmótsins til notenda og starfsmanna sveitarfélaga þar sem viðmótið leiðbeinir notandanum við umsókn og skilar betri og samræmdari gögnum til byggingarfulltrúa. Áfram verður unnið að þróun viðmótsins og innleiðingu hjá fleiri sveitarfélögum auk þess sem vinna við næsta áfanga verkefnisins er hafin og snýr að þróun afgreiðsluviðmóts byggingarleyfa hjá sveitarfélögum. Þannig geta sveitarfélög tekið á móti umsókn og afgreitt með skilvirkum hætti í einu og sama kerfinu og hönnuðir og aðrir notendur haft sameiginlega sýn á stöðu sinna mála frá umsókn til útgáfu leyfis.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS