15. september 2023

Tvær nýjar brunavarnaáætlanir taka gildi:

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Brunavarnir Húnaþings vestra og Slökkvilið Vesturbyggðar og Tálknafjarðar

Tvær nýjar brunavarnaáætlanir hafa nú verið undirrituð af slökkviliðsstjóra, sveitarstjóra viðkomandi sveitafélaga og forstjóra HMS. Um er að ræða brunavarnaáætlanir hjá Brunavörnum Húnaþings vestra og Slökkvilið Vesturbyggðar og Tálknafjarðar hins vegar.  

Á Íslandi eru 32 slökkvilið starfandi á vegum 64 sveitarfélaga. Í heildina eru nú 20 af 32 slökkviliðum með gilda brunavarnaáætlun.  

Markmið brunavarnaáætlunar er að tryggja að slökkvilið sé þannig mannað skipulagt, útbúið tækjum, menntað og þjálfað að það ráði við þær áhættur sem eru í sveitarfélaginu. Á hverju starfssvæði slökkviliðs skal liggja fyrir brunavarnaáætlun sem fengið hefur samþykki HMS og viðkomandi sveitarstjórnar. Slökkviliðsstjóri vinnur brunavarnaáætlun sem er öflugt verkfæri til að ná fram yfirsýn yfir starfsemi og ástand slökkviliðs og hversu vel í stakk búið það er að takast við áhættur á sínu svæði. Brunavarnaáætlunin er nú aðgengileg á vefsíðu viðkomandi sveitarfélags en einnig eru hún birt á vef HMS, hér. 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS