3. desember 2025
5. desember 2025
Tæpar 942 milljónir í húsnæðisstuðning í nóvember
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
HMS greiddi þann 1. desember sl. um 942 milljónir króna í húsnæðisstuðning til leigjenda vegna leigu í nóvember. Þessar greiðslur styðja við þúsundir heimila um land allt og miða að því að draga úr húsnæðiskostnaði efnaminni leigjenda og auka húsnæðisöryggi þeirra.
Í nóvember bárust 886 nýjar umsóknir um húsnæðisbætur. Flestar umsóknir voru vegna leiguhúsnæðis í einkaeigu, eða um 669. Aðrar umsóknir voru 77 vegna húsnæðis í eigu ríkis og sveitarfélaga, auk 117 umsókna vegna námsgarða og 23 vegna sambýla/áfangaheimila.
Húsnæðisstuðningurinn skiptist í tvo meginflokka. Það eru, almennar húsnæðisbætur og sérstakur húsnæðisstuðningur sveitarfélaga.
Almennar húsnæðisbætur
Stærsti hluti stuðningsins eru húsnæðisbætur, sem er ætlað að lækka húsnæðiskostnað tekju- og efnaminni leigjenda. HMS greiddi um 916 milljón króna til um 17.472 umsækjenda í almennar húsnæðisbætur vegna leigu í nóvember.
Sérstakur húsnæðisstuðningur fyrir Kópavog og Skagafjörð
HMS greiðir einnig sérstakan húsnæðisstuðning fyrir sveitarfélögin Skagafjörð og Kópavog sem hluta af tilraunaverkefni stjórnvalda. Sérstakur húsnæðisstuðningur er á vegum sveitarfélaganna og er ætlað að styðja við þá sem eiga erfitt með að standa straum af húsnæðiskostnaði vegna fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna. Í nóvember voru greiddar um 26 milljónir króna til um 1.017 umsækjenda í Kópavogi og 87 umsækjenda í Skagafirði.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS





