21. nóvember 2024
29. nóvember 2023
Starfandi í byggingariðnaði 2022
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Alls störfuðu 15.900 einstaklingar í byggingarstarfsemi sem aðalstarf á síðasta ári samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar. Þar af störfuðu 8.200 einstaklingar sem búsettir eru á höfuðborgarsvæðinu í byggingarstarfsemi og 7.700 einstaklingar sem búsettir eru utan höfuð-borgarsvæðis.
Þetta er mesti fjöldi starfandi í byggingarstarfsemi síðan árið 2008 en þá voru starfandi í atvinnugreininni 17.600 einstaklingar en fækkaði stórlega árin eftir.
Mynd 1: Fjöldi starfandi í byggingarstarfsemi eftir búsetu 2001 – 2022
Alls störfuðu á íslenskum vinnumarkaði 7,6% í byggingarstarfsemi á síðasta ári. Af þeim sem eru búsettir utan höfuðborgarsvæðis eru 10% starfandi í byggingarstarfsemi og 6,2% sem eru búsett á höfuðborgarsvæðinu. Hlutfall þeirra sem starfa í byggingarstarfsemi og eru búsett utan höfuðborgarsvæðisins hefur farið hækkandi undanfarin ár en hefur verið í nokkru jafnvægi á höfuðborgarsvæðinu.
Mynd 2. Hlutfall starfandi á vinnumarkaði í byggingarstarfsemi.
Hlutfall starfandi í byggingarstarfsemi hefur verið að aukast síðastliðinn áratug en hefur ekki náð þeim hæðum sem var árin fyrir efnahagshrunið 2008 en þá náði fjöldi starfandi 17.600 talsins og hlutfallið á vinnumarkaðnum var þá 11,9% en dróst verulega saman árin eftir.
Mynd 3: Hlutfallegar breytingar á starfandi í byggingarastarfsemi milli ára frá 2002.
Fjöldi starfandi í aðalstarfi jókst um 6,9% milli áranna 2021 og 2022 og er þetta skarpasta fjölgun starfandi í byggingarstarfsemi á síðastliðnum tuttugu árum.
Heimild: Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS