2. mars 2020

Staða leigjenda bætt stórlega

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Skilyrði fyrir hækkun húsaleigu verða þrengd, leigusamningar skráðir og forgangur að áframhaldandi leigu tryggður

Skilyrði fyrir hækkun húsaleigu verða þrengd, leigusamningar skráðir og forgangur að áframhaldandi leigu tryggður

  • Breyta á húsaleigulögum með það fyrir augum að styrkja verulega stöðu leigjenda hér á landi og gera veru á leigumarkaði að fýsilegum kosti fyrir fólk til langs tíma.
  • Tekin verður upp skráningarskylda leigusamninga en hún bætir samningsstöðu leigjenda og stuðlar að sanngjarnri leigufjárhæð. Hægt verði að fletta upp á netinu meðalverði og meðallengd leigusamninga á ólíkum svæðum og hverfum.
  • Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra ávarpaði fundinn: „Leigjendur upplifa leigumarkaðinn í dag ekki sem raunverulegan valkost um búsetuform.“
  • Drífa Snædal: „Ekki hægt að hugsa sér betri kjarabætur en lækkun húsnæðiskostnaðar.“
  • Til stendur að þrengja skilyrði fyrir hækkunum á húsaleigu og bjóða upp á sáttamiðlun á vegum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) fyrir leigjendur og leigusala.

Breyta á húsaleigulögum með það fyrir augum að styrkja verulega stöðu leigjenda hér á landi og gera veru á leigumarkaði að fýsilegum kosti fyrir fólk til langs tíma. Breytingarnar voru kynntar á opnum fundi í Húsnæðis- og mannvirkjastofnun í dag. Á fundinum kom fram að leigumarkaðurinn á Íslandi stækkaði um 70% á árunum eftir hrun og voru þeir sem færðust yfir á leigumarkaðinn að stærstum hluta fólk með lágar tekjur. Á sama tíma hækkaði leiga á stuttum tíma um 45%. Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, sagði fyrirhugaðar breytingar á húsaleigulögunum eigi að stuðla að langtímaleigu og koma í veg fyrir óeðlilegar hækkanir á leiguverði, þegar hann kynnti þær á fundinum í dag.

Leigumarkaður ekki raunverulegur valkostur – 8 þúsund heimili greiða meira en 50% af tekjum í leiguÁsmundur minntist á það í erindi sínu að um 22% leigjenda greiði meira en helming af ráðstöfunartekjum sínum í húsaleigu eða alls 8 þúsund heimili. Samkvæmt alþjóðlegum viðmiðum telst húsnæðiskostnaður íþyngjandi fari hann umfram 40% af ráðstöfunartekjum. „Þetta segir okkur að leigjendur eru að upplifa mikið óöryggi þegar kemur að þessari grundvallarundirstöðu í lífinu, að hafa þak yfir höfuðið og eru ekki að upplifa leigumarkaðinn sem raunverulegan valkost um búsetuform. Við þessu verðum við að bregðast,“ sagði Ásmundur á fundinum. Stjórnvöldum beri skylda til að aðstoða tekjulægstu hópana á húsnæðismarkaði.Ekki hægt að hugsa sér betri kjarabætur en lækkun húsnæðiskostnaðarDrífa Snædal, forseti ASÍ, tók til máls á fundinum og sagði hann vera stóra stund. Hún þakkaði því næst öllum þeim sem komið hafa að mótun tillagnanna sem kynntar voru í dag. Kallað hafi verið eftir ólíkum sjónarmiðum og hugmyndum frá þeim sem láta sig varða hag almennings á húsnæðismarkaði og í frumvarpinu sjáist að um sögulegar breytingar sé að ræða; „Ekki er hægt að hugsa sér betri kjarabætur en lækkun húsnæðiskostnaðar,“ sagði Drífa ennfremur.Þrengja á skilyrðin fyrir einhliða hækkun á húsaleiguÍ þeim breytingum sem gerðar verða á húsaleigulögunum felst m.a. að stuðlað verði að því að oftar séu gerðir ótímabundnir samningar um leigu íbúðarhúsnæðis. Flestir leigusamningar hér á landi eru gerðir til skamms tíma en meðallengd þeirra er einungis fjórtán mánuðir. Ótímabundnir samningar eru einungis um 3% leigusamninga í dag. Þá kveður frumvarpið á um að leigjendur skuli njóta forgangsréttar á áframhaldandi leigu þess húsnæðis sem þeir búi í. Tekin verður upp skráningarskylda leigusamninga en hún stuðlar að bættri samningsstöðu leigjenda og sanngjarnri ákvörðun leigufjárhæðar. Fyrirmyndin er m.a. skráningarskylda heimagistingar eins og Airbnb, sem tekin var upp fyrir nokkrum árum og reynst hefur vel. Hægt verði að fletta upp á netinu meðalverði og meðallengd leigusamninga á ólíkum svæðum og hverfum. Þá mun skráningin skapa bætta umgjörð og skipulag á leigumarkaðnum í heild.Til stendur að þrengja skilyrðin sem eru í núgildandi lögum fyrir einhliða hækkun á húsaleigu en hækkanir á leiguverði hafa verið miklar og örar, sem hefur skapað leigjendum óöryggi. Til að skera úr um ágreiningsefni verður boðið upp á sérstaka sáttamiðlun á vegum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) fyrir leigjendur og leigusala.

Glærur frá kynningarfundi má nálgast hér.

 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS