5. desember 2024

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um hlutdeildarlán fyrir desember

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

HMS opnaði í morgun fyrir umsóknir um hlutdeildarlán. Hægt verður að sækja um hlutdeildarlán til kl. 12:00 þann 16. desember nk. með því að smella á þennan hlekk. Um er að ræða síðustu úthlutun ársins.

Hlutdeildarlán eru veitt til kaupa á nýjum íbúðum og standa til boða fyrir fyrstu kaupendur og þau sem ekki hafa átt íbúð sl. fimm ár og eru undir tilteknum tekjumörkum. Lánunum er því ætlað að auðvelda fólki að brúa bilið við fasteignakaup og komast inn á húsnæðismarkaðinn.

Hægt að sækja um til og með 16. des­em­ber

Umsóknartímabilið að þessu sinni er frá 5. desember til kl. 12:00 þann 16. desember.
Til úthlutunar fyrir umsóknartímabilið eru 400 milljónir króna og dugi fjármagnið ekki sem nú er til úthlutunar verður dregið af handahófi úr umsóknum þeirra umsækjanda sem uppfylla skilyrði hlutdeildarlána í samræmi við forgangsreglur.

Í forgangi eru umsóknir þar sem staðfest kauptilboð liggur fyrir, auk þess sem miða skal við að á hverju ári verði að minnsta kosti 20% veittra hlutdeildarlána úthlutað til kaupa á íbúðum utan höfuðborgarsvæðisins. Ekki verður hægt að gefa út lánsvilyrði fyrr en allar umsóknir hafa verið yfirfarnar.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS