12. nóvember 2020

OECD leggur til að regluverk í byggingariðnaði verði einfaldað

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Tækifæri til þess að auka skilvirkni í byggingariðnaði og lækka byggingakostnað til hagsbóta fyrir neytendur

Tækifæri til þess að auka skilvirkni í byggingariðnaði og lækka byggingakostnað til hagsbóta fyrir neytendur

Þróunar- og framfarastofnun Evrópu (OECD) kynnti á sérstökum kynningarfundi á þriðjudaginn niðurstöður samkeppnismats á regluverki ferðaþjónustu og byggingariðnaðar hér á landi. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur farið yfir mat OECD og segir tillögur stofnunarinnar sýna að íslensk stjórnvöld hafi tækifæri á að endurskoða regluverk í byggingariðnaði með það fyrir augum að fækka samkeppnishömlum. Margar af tillögum OECD falli vel að þeim úrbótum sem þegar er unnið að innan HMS og koma fram í frumvarpi um breytingar á lögum um mannvirki sem núna er til umfjöllunar á Alþingi. Þar má t.d nefna áform um flokkun mannvirkja og skipulag eftirlits. Þá séu í skýrslu OECD margar áhugaverðar ábendingar og athugasemdir sem gott er að fá fram og hafa hliðsjón af í þeirri vinnu sem þegar er hafin.

Ráðherra lýsti áhyggjum af töfum í byggingu hagkvæms húsnæðisÁsmundur Einar Daðason, félagsmála- og barnamálaráðherra, ávarpaði fundinn og þakkaði OECD sérstaklega fyrir matið og sagði það mikilvægt að skoða reglulega umgjörð byggingariðnarðarins, ekki síst með það fyrir augum að fjarlægja óþarfa reglubyrði og minnka óþarfa tafir í ferlinu. Þannig mætti auka hagkvæmni og byggja húsnæði hraðar og ódýrar án þess að það komi niður á gæðum. Ráðherra sagði að hluti af úrbótatillögum OECD verði framkvæmdar og að sumar væru þegar langt komnar í vinnslu. Hluta af tillögunum þurfi hins vegar að taka pólitíska umræðu um og ekki víst að samstaða sé á Alþingi um að hrinda þeim öllum í framkvæmd.

HMS telur afnám samkeppnishamla og faglegt eftirlit geta vel farið samanÞað er mat HMS að þær tillögur sem OECD setur fram um afnám samkeppnishamla hér á landi geta fallið vel að því markmiði HMS að tryggja almenningi aðgengi að hentugu húsnæði á viðráðanlegu verði. Á hinn bóginn þurfi HMS að gæta að því mikilvæga hlutverki að vernda líf og heilsu manna, eignir og umhverfi. Til þess að það sé hægt þarf að tryggja faglegan undirbúning mannvirkjagerðar og virkt eftirlit með gæðum, öryggi og heilnæmi. Þannig vegast stundum á sjónarmið um virka samkeppni í byggingariðnaði annars vegar og kröfur um eftirlit með öryggi og gæðum og neytendasjónarmið hins vegar. HMS telur að þessi sjónarmið geti einnig stutt við hvort annað og þar sem sjónarmiðin fara saman sé ótvírætt tækifæri til úrbóta – iðnaðinum í heild til framdráttar.

Ekki gerður greinarmunur á nýbyggingu sumarbústaðar og spítalaAlþingi hefur nú til meðferðar frumvarp til laga um breytingu á lögum um mannvirki. Frumvarpið var unnið í samráði við HMS sem styður efni þess. Með frumvarpinu er lagt til að mannvirkjagerð verði flokkuð eftir vandastigi (þ.e.a.s. hversu flókin eða einföld framkvæmdin er), fyrirhugaðri notkun og samfélagslegu mikilvægi. Markmiðið er að hægt sé að aðlaga umsóknarferli og eftirlit að gerð og umfangi framkvæmda. Í dag er til að mynda ekki gerður greinarmunur á nýbyggingu sumarbústaðar og spítala hvað þetta varðar jafnvel þó að ekki sé hægt að jafna saman umfangi, flækjustigi eða áhættustigi þessara tveggja ólíku byggingarframkvæmda. Þá er notkun og samfélagslegt mikilvægi þeirra allt annað. Að reglur um hönnun, umsókn og skilyrði til útgáfu byggingarleyfis séu alltaf þær sömu og að sama fyrirkomulag sé á innra og ytra eftirliti er augljóslega óskilvirkt, þungt í vöfum og kostnaðarsamt. Sú gagnrýni OECD að ferli við öflun byggingarleyfis sé íþyngjandi er skiljanleg og HMS getur tekið undir flestar athugasemdir OECD hvað þetta varðar. HMS vinnur nú að úrbótum á þessu sviði.

Hægt að setja fram skýrari og markvissari kröfur í byggingarreglugerðAuk fyrrnefndrar flokkun mannvirkjagerðar hjá HMS er einnig til skoðunar að endurskoða reglur um minniháttar mannvirkjagerð eða smávægilegar breytingar sem eru undanþegnar byggingarleyfi í dag en eru tilkynningarskyldar. Ríkar kröfur og mögulega skortur á þekkingu hafa leitt til þess að lítið fer fyrir slíkum tilkynningum og fyrirkomulagið því illa fallið til að ná fram markmiðum laganna, að tryggja virkt eftirlit með að kröfum um öryggi og heilnæmi sé fullnægt. Það er mat HMS að með flokkun sé hægt að setja fram skýrari og markvissari kröfur í byggingarreglugerð og einfalda ferli í kringum umsóknir og tilkynningar að teknu tilliti til flokkunar mannvirkja. Í þessari vinnu er verið að vinna í samræmi við tillögur OECD að úrbótum að stærstum hluta. HMS mun áfram, sem hingað til, horfa til framkominnar gagnrýni OECD og tillagna um úrbætur út frá verkefnum stofnunarinnar í víðtæku samráði við ráðherra og önnur stjórnvöld á sviði mannvirkjamála.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS