19. júní 2025
19. júní 2025
Nýtt verkefni Bjargs íbúðafélags í Trölladal í Reykjanesbæ
Fyrsta skóflustunga hefur verið tekin að nýju verkefni Bjargs íbúðafélags hses. sem hyggst reisa 30 íbúðir við Trölladal 1–11 í Reykjanesbæ. Verkefnið nýtur stuðnings í formi stofnframlaga frá ríki og sveitarfélagi sem var samþykkt í annarri úthlutun ársins 2023.
Um er að ræða sex fjölbýlishús þar sem hvert fjölbýli inniheldur fimm almennar leiguíbúðir fyrir tekju- og eignaminni einstaklinga og fjölskyldur. Íbúðirnar verða af mismunandi stærð, allt frá tveggja herbergja upp í fimm herbergja íbúðir. Áætlað er að fyrstu íbúðir fari í útleigu í júlí 2026.
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir uppbygginguna mikilvæg skref í átt að húsnæðisöryggi í bænum: „Við erum afskaplega ánægð að þessar framkvæmdir eru að fara af stað, sérstaklega í ljósi þess að uppbygging Bjargs íbúðafélags tryggir öruggt og hagkvæmt leiguhúsnæði. Við fögnum einnig áherslum Bjargs um skýr markmið um kostnað og gæði íbúða og erum fullviss um að uppbyggingin verði jákvæð fyrir samfélagið okkar.“
Með þessum nýju íbúðum eykst framboð leiguíbúða í Reykjanesbæ sem reknar eru án hagnaðarsjónarmiða og stuðlar að auknu húsnæðisöryggi og stöðugleika fyrir tekju- og eignaminni heimili, en það er einmitt markmið laga um almennar íbúðir.