16. október 2026

Nýskráðum leigusamningum fækkar á milli ára

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Rúmlega 7.500 nýir leigusamningar tóku gildi á þriðja ársfjórðungi
  • Nýskráðum leigusamningum hefur fækkað á milli ára
  • Hlutdeild óhagnaðardrifinna leigufélaga er að jafnaði mikil á þriðja ársfjórðungi vegna útleigu námsmannaíbúða

Tæplega 2 þúsund nýir leigusamningar tóku gildi í september 2026 samkvæmt upplýsingum úr leiguskrá HMS, á sama tíma og tæplega 1.500 samningar féllu úr gildi. Nýskráðum leigusamningum á þriðja ársfjórðungi fækkaði á milli ára, en stærstur hluti þeirra var um íbúðir á vegum óhagnaðardrifinna leigufélaga. Þar hefur áhrif að fjöldi nýrra leigusamninga um námsmannaíbúðir tóku gildi í ágúst. Þetta má lesa úr mælaborði um fjölda leigusamninga sem tóku gildi og féllu úr gildi eftir tegund leigusala.  

Leigu­samn­ing­um á þriðja árs­fjórð­ungi fækk­aði á milli ára

Nýskráðir leigusamningar á þriðja ársfjórðungi voru rúmlega 7.500 talsins. Á sama tíma í fyrra tóku rúmlega 8 þúsund leigusamningar gildi í leiguskrá og því fækkaði nýskráðum samningum á þriðja ársfjórðungi um rúmlega 6% á milli ára.

Leigusamningum á fyrstu níu mánuðum ársins fækkaði jafnframt á milli ára. Það sem af er ári hafa um 17.100 samningar tekið gildi í leiguskrá, samanborið við 17.900 á sama tíma í fyrra. Nýjum leigusamningum á fyrstu þremur ársfjórðungum fækkaði því um 4,5% á milli ára

Óhagn­að­ar­drif­in leigu­fé­lög um­svifa­mik­il á þriðja árs­fjórð­ungi

Alla jafna er stærstur hluti nýrra leigusamninga á hverjum ársfjórðungi um íbúðir á vegum einstaklinga, eða að jafnaði rúmlega 40% samninga. Á þriðja ársfjórðungi hvers árs er hlutdeild einstaklingsleigusala aftur á móti að jafnaði í kring um 33% á meðan hlutdeild óhagnaðardrifinna leigufélaga er gjarnan talsvert hærri. Það skýrist af því að í ágúst á hverju ári taka yfirleitt gildi fjölmargir leigusamningar um námsmannaíbúðir, sem eru að meginstefnu til á vegum óhagnaðardrifinna leigufélaga.

Önnur leigufélög standa að jafnaði að baki um þriðjungi nýrra leigusamninga í hverjum mánuði, og sveitarfélög að jafnaði um 8% samninga. Á þriðja ársfjórðungi er hlutdeild annarra leigufélaga hins vegar yfirleitt um 19% og hlutdeild sveitarfélaga um 4%.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS