20. október 2026
Minna en markvissara byggingareftirlit lagt til í nýju lagafrumvarpi
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Stjórnvöld leggja til breytingar á byggingareftirliti með nýju lagafrumvarpi sem er nú birt í Samráðsgátt
- Með breytingunum yrði fallið frá ýmsum íþyngjandi kröfum í núverandi kerfi sem hafa ekki skilað árangri
- Ytra eftirlit með mannvirkjum myndi einungis beinast að áhættusömum mannvirkjum og yrðu þau framkvæmd af óháðum skoðunarstofum
Frumvarp til breytinga á lögum um mannvirki hefur verið birt í Samráðsgátt stjórnvalda. Þar eru lagðar til umfangsmiklar breytingar á byggingareftirliti með það að markmiði að einfalda regluverkið, auka neytendavernd og stórbæta stjórnsýslu með stafrænum lausnum.
Samkvæmt frumvarpinu yrði öll stjórnsýsla mannvirkjamála í gegnum mannvirkjaskrá HMS sem auka myndi samræmi í framkvæmd og túlkun. Mannvirkjaskrá yrði annars vegar rafrænt kerfi sem heldur utan um stjórnsýslu mannvirkjamála, umsóknir, leyfisveitingar og eftirlit með framkvæmdum við mannvirki og notkun þeirra og hins vegar gagnasafn fyrir upplýsingar um mannvirki og mannvirkjagerð um land allt.
Ýmsar íþyngjandi kröfur falli brott
Mikilvægur þáttur breytinganna er að fallið yrði frá ýmsum íþyngjandi kröfum í núverandi kerfi sem ekki hafa skilað þeim árangri sem þeim var ætlað. Meðal annars er lagt til að eftirfarandi falli niður:
- Ytra eftirlit eingöngu með áhættumestu mannvirkjagerðinni
- Krafa um byggingarstjóra með starfsleyfi og lögbundna starfsábyrgðartryggingu
- Áfangaúttektir
- Virkniskoðanir gæðastjórnunarkerfa
- Skoðunarhandbækur og almennir skoðunarlistar
- Byggingarheimild og tilkynningarskylda
- Krafa um staðfestingu iðnmeistara sem skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis
- Einungis gerð krafa um staðfesta ábyrgð þeirra iðnmeistara sem sannarlega koma að viðkomandi verki
Ytra eftirlit verður áhættumiðað og framkvæmt af óháðum skoðunarstofum
Verði frumvarpið að lögum yrði mannvirkjum skipt í áhættuflokka. Ekki yrði gerð krafa um eftirlit með mannvirkjum í lægsta áhættuflokki og ytra eftirlit myndi einungis beinast að mannvirkjum í áhættumesta flokknum. Ytra eftirlit yrði í höndum óháðra skoðunarstofa sem hlotið hafa starfsleyfi frá HMS. Innra eftirlit yrði áfram á ábyrgð verkeiganda.
Umfang ytra eftirlits myndi svo ráðast af stærð, fyrirhugaðri notkun og flækjustigi mannvirkis, byggingarefnum og frammistöðu þeirra fagaðila sem koma að verkinu. Þetta þýðir að góð frammistaða fagaðila skiptir máli. Þeir sem stæðu vel að verkum ættu að sæta lágmarks ytra eftirliti en þar sem frammistaða, m.a. frá fyrri verkum, gæfi tilefni til yrði eftirlitið meira. Eftirlitið ætti þannig að beinast þangað sem áhættan og þörfin er mest.
Kjarninn í breytingunum er einfaldari umgjörð og markvissara eftirlit; minna eftirlit þar sem áhættan er lítil en öflugra eftirlit þar sem áhættan er mest. Þannig yrði stefnt að því að draga úr óþarfa byrðum án þess að slaka á kröfum um gæði og öryggi mannvirkja.
Notkunareftirlit eykur neytendavernd
Nýmæli í frumvarpinu er svokallað notkunareftirlit sem ætlað er að auka neytendavernd og draga úr byggingargöllum með því að fanga snemma frávik eða galla sem leitt gætu til tjóns og/eða fyrirbyggja frekara tjón. Í notkunareftirliti felst að eiganda íbúðarhúsnæðis yrði skylt að láta framkvæma tvær skoðanir þegar íbúðarhúsnæði hefur verið tekið í notkun, einu og fimm árum eftir öryggisúttekt.
Niðurstöður úr notkunareftirliti gætu nýst neytendum á margvíslegan hátt og yrðu nýttar af HMS til að greina og leggja mat á áhættusama verkþætti og leiða til markvissari fræðslu og eftirlits á hverjum tíma.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




