8. maí 2025
14. október 2020
Mikil virkni á leigumarkaði
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Þjóðskrá hefur birt fjölda þinglýstra leigusamninga fyrir september og hefur þeim fjölgað töluvert frá mánuðinum á undan. Heildarfjöldi samninga á landinu var 1.152 í september og er aukningun milli mánaða 28% en 14% ef miðað er við sama mánuð í fyrra.
Þjóðskrá hefur birt fjölda þinglýstra leigusamninga fyrir september og hefur þeim fjölgað töluvert frá mánuðinum á undan. Heildarfjöldi samninga á landinu var 1.152 í september og er aukningun milli mánaða 28% en 14% ef miðað er við sama mánuð í fyrra.
Mesta fjölgunin var á höfuðborgarsvæðinu þar sem hún nam 43% milli mánaða en 24% frá því í september í fyrra. Því virðist hafa orðið töluverð fjölgun leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu í september. Þar gæti spilað inn í aukið framboð leiguíbúða á árinu sem kom í kjölfarið á miklum samdrætti á skammtímaleigumarkaði eins og Airbnb. Þó það sé algengt að það komi kippur í fjölda þinglýsinga í september er þetta mesti fjöldi þinglýstra samninga í einum mánuði frá því að dregið var úr kröfum um þinglýsingu samninga árið 2017.
Hér að neðan sést þriggja mánaða meðaltal þinglýstra kaupsamninga frá árinu 2017 og ljóst að um töluverða aukningu er að ræða. Í mánaðarskýrslu HMS fyrir október er fjallað ítarlega um þær breytingar sem hafa orðið á leigumarkaði að undanförnu þar sem verulega hefur hægst á hækkunum leiguverðs. Þetta sést á því að vísitala leiguverðs hefur lækkað, meðalleiguverð sömuleiðis og meðalstærð íbúða hefur einnig minnkað. Líklegt er að þessar breytingar megi rekja til þess að framboðið hafi aukist og að um minni íbúðir sé að ræða en áður, sem kemur heim og saman við að mikið af skammtímaleiguíbúðum var að finna miðsvæðis þar sem eru alla jafna minni íbúðir.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS