25. mars 2025

Merki um aukna virkni á byggingarmarkaði

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • 7.181 íbúð telst í byggingu á landinu öllu sem er samdráttur um nærri 10% frá því sama tíma fyrir ári síðan.
  • Framvinda uppbyggingar er hraðari en undanfarin misseri og fleiri framkvæmdir sem fara af stað á milli talninga.
  • Fjöldi íbúða á fyrri stigum, fram að fokheldi, er sá minnsti frá því talningar hófust í september 2021. Frá mars 2024 hefur þeim fækkað um 947 íbúðir, eða 22,7%.

HMS framkvæmir tvisvar á ári heildstæða greiningu á stöðu íbúðauppbyggingar á Íslandi með talningu allra íbúða í byggingu. Slík greining, sem fram fer í mars og september ár hvert, veitir yfirsýn yfir umfang framkvæmda, dreifingu þeirra milli landshluta og þróun á mismunandi stigum byggingarferlisins.

Greining og stöðumat íbúða í byggingu

Samkvæmt nýjustu talningu er alls 7.181 íbúð í byggingu á landinu sem er nánast sami fjöldi íbúða og taldar voru i síðustu talningu, sem framkvæmd var í september síðastliðnum, þegar 7.221 íbúð var í byggingu. Sé litið til sama tíma í fyrra, þegar 7.976 íbúðir voru í byggingu, nemur samdrátturinn nærri 10%.

Á undanförnum árum hefur íbúðum í byggingu á höfuðborgarsvæðinu farið fækkandi og hélt sú fækkun áfram á þessu ári. Mest dró úr framkvæmdum í Kópavogi og Hafnarfirði, þar sem þeim fækkaði um 20,5% og 19,9% milli talninga eða samtals um 339 íbúðir. Í Reykjavík var fækkunin minni, en engu að síður eru íbúðir í byggingu þar færri en þær hafa verið frá því að HMS hóf reglubundnar talningar árið 2021.

Á sama tíma fjölgar íbúðum í byggingu í sveitarfélögum í nágrenni höfuðborgarsvæðisins um 19,7%. Mest er fjölgunin í Sveitarfélaginu Ölfusi, þar sem hún nemur 132,8%, en einnig var marktæk fjölgun í Sveitarfélaginu Vogum þar sem íbúðum í byggingu fjölgaði um 98,9%. Á hinn bóginn hefur dregið úr uppbyggingu á Akranesi, þar sem samdráttur er um 19,0%.

Fram­kvæmd­ir ganga hrað­ar en áður

Í talningum ársins 2023 komu fram vísbendingar um að hægt hefði á framvindu íbúðaframkvæmda. Þetta mátti meðal annars sjá á því að talsverður fjöldi íbúða var á sama framvindustigi milli talninga, þrátt fyrir að þær hefðu í flestum tilfellum átt að vera komnar lengra í ferlinu á þeim tíma sem leið á milli talninga. Síðan þá hefur þróunin orðið önnur, sífellt færri framkvæmdir standa í stað milli talninga og framvindan virðist nú hraðari. Flestar hafa íbúðir með óbreytta framvindu verið 3.929 talsins í september 2023 en sé litið á fjöldann í tengslum við mögulegar árstíðarbreytingar þá eru íbúðir sem nú mælast með óbreytta framvindu um 61,4% færri en mældist fyrir tveimur árum síðan og um 35,2% færri en fyrir ári síðan.

Nýj­um fram­kvæmd­um fjölg­ar

Frá síðustu talningu í september 2024 hafa hafist framkvæmdir við 1.585 nýjar íbúðir víðs vegar um landið. Þetta eru íbúðir sem ekki voru í byggingu við síðustu talningu og marka áframhaldandi viðsnúning frá lágpunkti nýframkvæmda í september 2023. Til að mynda eru nú 48,8% fleiri íbúðir í nýjum framkvæmdum en mældust í mars talningu 2024.

Tæplega helmingur nýframkvæmda, eða um 49 prósent, er á höfuðborgarsvæðinu, sem er hlutfallslega minna en áður hefur mælst. Til samanburðar voru 59 prósent nýrra framkvæmda þar við síðustu talningu og 69 prósent í mars 2024, sem bendir til þess að nýframkvæmdir dreifist nú í auknum mæli til annarra landshluta.

Upp­taka af fundi

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS