16. september 2024

Margar óseldar nýbyggingar miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Rúmlega sex af hverjum tíu nýbyggingum sem auglýstar voru til sölu á fyrri helmingi ársins á höfuðborgarsvæðinu eru óseldar
  • Margar óseldar nýbyggingar eru staðsettar miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu
  • Einungis 15 prósent af heildarframboði íbúða í nýbyggingum eru auglýstar eða seldar undir 65 milljónum króna

Einungis 30 prósent af nýjum íbúðum sem auglýst hafa verið til sölu á höfuðborgarsvæðinu fyrri helmingi ársins hafa selst, samkvæmt upplýsingum sem HMS hefur unnið úr fasteignaauglýsingum og kaupskrá fasteigna. Margar óseldar nýbyggingar eru staðsettar miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu.

Á tímabilinu janúar til júlí var 1.911 nýbygging auglýst til sölu, en þar af seldust 714 íbúðir. Á kortinu hér að neðan má sjá söluhlutfall nýbygginga eftir götuheitum, en þar sést að í flestum tilvikum eru einungis 25 til 50 prósent íbúða seldar í hverri götu.

Hægt er að nálgast gagnvirkt kort af seldum og óseldum nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu með því að smella á þennan hlekk. Skjáskot af kortinu má sjá hér að neðan.

HMS notar hér gögn um auglýsingar á tímabilinu 1. janúar til 1. júlí frá síðunni fasteignir.is og gögn um kaupsamninga íbúðanna sem voru auglýstar á tímabilinu 1. janúar til dagsins í dag frá kaupskrá. HMS þótti áreiðanlegast að hafa tveggja mánaða bil á milli auglýstra og seldra eigna þar sem oft tekur langan tíma að þinglýsa kaupsamning.

Flest­ar ný­bygg­ing­ar finn­ast í Hafn­ar­firði og ódýr­ustu í Graf­ar­holt­inu

Meðalverð seldra nýbygginga er 88 m.kr. á sama tíma og meðalverð auglýstra nýbygginga er 93 m.kr. Einungis 15 prósent allra nýbygginga eru seldar eða auglýstar undir 65 m.kr.

Í Hafnarfirði, eða póstnúmerinu 221, eru flestar nýbyggingar auglýstar til sölu, eða um 496 talsins, þar sem 133 íbúðir hafa verið seldar. Að meðaltali er verð þessara íbúða 77 m.kr., sem er eitt lægsta meðalverðið á meðal póstnúmera á höfuðborgarsvæðinu. Ódýrustu nýbyggingarnar má finna í Grafarholtinu þar sem meðalverðið er 65 m.kr.

Dýrustu nýbyggingarnar eru staðsettar á Seltjarnarnesi og miðbæ Reykjavíkur eða í póstnúmerum 101, 102 og 170. En þar er meðalverð nýbygginga í kringum 115 m.kr. Um 60 prósent seldra nýbygginga hafa selst á auglýstu kaupverði, 14 prósent yfir auglýstu kaupverði og 26 prósent undir auglýstu kaupverði.

Líkt og HMS benti á í síðustu mánaðarskýrslu sinni voru 38 prósent allra íbúða til sölu nýbyggingar á síðustu mánuðum og hefur hlutdeild nýrra íbúða í framboði ekki verið jafnmikil frá ársbyrjun 2020. Möguleg skýring á þessari þróun er minnkandi eftirspurn eftir nýbyggingum eða fjölgun íbúða sem auglýstar eru áður en þær eru fullkláraðar, en borið hefur á því að fleiri nýbyggingar séu auglýstar til sölu á fyrri byggingarstigum.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS