19. mars 2026

Mánaðarskýrsla HMS mars 2026

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Mánaðarskýrsla HMS fyrir mars 2026 er komin út, en hana má nálgast með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að fasteignamarkaðurinn er rólegur um þessar mundir, en lítill verðþrýstingur hefur mælst á markaðnum undanfarna mánuði. Á byggingarmarkaði hafa færri nýjar íbúðir orðið fullbúnar á fyrstu tveimur mánuðum þessa árs samanborið við fyrri ár.

Mánaðarskýrsla HMS

Myndir að baki mánaðarskýrslu

Fram­boð á íbúða­mark­aði hef­ur auk­ist mik­ið frá ára­mót­um

Fasteignamarkaðurinn er rólegur um þessar mundir, en lítill verðþrýstingur hefur mælst á markaðnum undanfarna mánuði. Eftir miklar íbúðaverðshækkanir undanfarin ár á sér nú stað aðlögun í gegnum raunverðslækkanir, þar sem íbúðaverð hefur hækkað minna en almennt verðlag síðan í fyrrasumar.

Fasteignasalar telja í auknum mæli að markaðnum megi lýsa sem miklum kaupendamarkaði og að algengara sé að verð sé lækkað í söluferli. Viðhorf fasteignasala er í samræmi við talsverða fjölgun íbúða til sölu frá áramótum og að íbúðir seljist sjaldnar yfir auglýstu söluverði.

Helm­ing­ur allra gildra leigu­samn­inga varða íbúð­ir í Reykja­vík

Á leigumarkaði hefur einnig dregið úr verðþrýstingi undanfarin misseri þar sem hægt hefur á leiguverðshækkunum á ársgrundvelli og leiguverð hefur staðið í stað að raunvirði undanfarna tólf mánuði. Hlutfallslega margir gildir leigusamningar í leiguskrá HMS varða nýlegar íbúðir sem byggðar hafa verið á árunum 2021 til 2025. Kröftug uppbygging íbúðarhúsnæðis á tímabilinu hefur þar áhrif, auk þess sem veiting stofnframlaga til uppbyggingar leiguíbúða og dræm sala nýrra íbúða hafa einnig sitt að segja.

Hlut­fall óverð­tryggðra út­lána lækk­ar hæg­ar

Á lánamarkaði hefur raunvirði útistandandi íbúðalána heimila nánast staðið í stað í fjögur ár. Samsetning lánanna hefur þó tekið töluverðum breytingum á tímabilinu, einkum vegna endurfjármögnunar óverðtryggðra lána með verðtryggðum lánum á tímabili hárra vaxta. Með lækkandi lánavöxtum hefur hins vegar hægt á þessari þróun á síðustu mánuðum, en hrein ný óverðtryggð útlán námu 2,5 milljörðum króna í janúar.

Færri íbúð­ir full­bún­ar á fyrstu tveim­ur mán­uð­um árs­ins sam­an­bor­ið við í fyrra

Á byggingarmarkaði hafa færri nýjar íbúðir orðið fullbúnar á fyrstu tveimur mánuðum þessa árs samanborið við fyrri ár. Það þarf þó ekki að endurspegla hvernig íbúðauppbygging á árinu mun þróast þegar upp er staðið en vísbendingar eru um að byggingaraðilar seinki verklokum vegna mikils framboðs af nýjum óseldum íbúðum á markaði.

Margt bendir til þess að umsvif í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð séu enn töluverð, en vinnustundum í greininni fjölgaði á milli áranna 2024 og 2025 ásamt því að velta í byggingariðnaði jókst jafnframt talsvert undir lok síðasta árs. Enn fremur eru nýskráningar fyrirtækja í greininni fleiri en gjaldþrot.

Ný talning HMS á íbúðum í byggingu verður kynnt á þriðjudaginn í næstu viku á opnum fundi.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS