26. október 2023

Mánaðarskýrsla hagdeildar HMS fyrir október 2023

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Ríflega 70% samdráttur er í nýbyggingum en frá því í mars á þessu ári og fram í september var aðeins hafin bygging á 768 íbúðum á landinu öllu samanborið við sama tímabil í fyrra þegar byrjað var að byggja 2.575 íbúðir. Skýringin kann að vera sú að hækkandi vaxtastig sé farið að hafa áhrif á byggingamarkaðinn.
  • Verulega dregur úr sölu nýrra íbúða en 777 íbúðir eru fullbúnar en hafa ekki verið teknar í notkun. Til samanburðar þá voru þær 238 í mars síðastliðnum og 131 í september í fyrra. Þær eru því um fimmfalt fleiri nú samanborið fyrir ári síðan.
  • Hægst hefur á framkvæmdum milli ára en af þeim 8.683 íbúðir sem eru í byggingu eru 2.356 íbúðir enn á sama byggingarstigi, nú og í síðustu talningu í mars sem að öllu jöfnu væru komnar á næsta byggingarstig á milli talninga.
  • Í september komu 113 nýbyggðar íbúðir inn á markað á landinu og samtals hafa 2.389 nýbyggðar íbúðir komið inn á markað til þessa á árinu.
  • Kaupsamningum fjölgar um 8% milli mánaða sé miðað við árstíðaleiðréttar tölur. Í ágúst voru gefnir út 649 kaupsamningar um íbúðarhúsnæði sem gera 675 samninga þegar leiðrétt hefur verið fyrir reglubundnum árstíðasveiflum.
  • Alls voru 717 fasteignir teknar úr sölu á höfuðborgarsvæðinu í september sem er um 43% aukning frá því sem var í september í fyrra sem út frá sögulegum gögnum gefur vísbendingu um að kaupsamningum sé að fjölga.
  • Það hægðist á raunverðslækkun íbúða í september þegar 12 mánaða raunlækkun á höfuðborgarsvæðinu mældist 5% en var 5,3% í ágúst. Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 1,4% að nafnvirði á milli mánaða í september.

70% sam­drátt­ur í bygg­ingu nýrra íbúða

Framkvæmdir hófust við byggingu á 846 íbúðum á milli talninga HMS á íbúðum í byggingu en það eru framkvæmdir sem ekki voru í síðustu talningu HMS í mars 2023. Heildarfjöldi nýrra framkvæmda er töluvert lægri í nýjustu talningu samanborið við fyrri talningar, en í talningunni í mars 2023 var fjöldi nýrra framkvæmda 1.583 íbúðir, í september 2022 var hann 2.574 íbúðir og í talningunni í mars 2022 var hann 2.687 íbúðir. Nýjar framkvæmdir eru að dragast saman á öllum landshlutum nema á Norðurlandi vestra en þar voru sex íbúðir í nýjum framkvæmdum en voru engar í síðustu talningu. Samdráttur nýrra framkvæmda er hlutfallslega mest í Vesturlandi og Suðurnesjum en fjöldi nýrra framkvæmda dróst saman um 85% á Vesturlandi og 83% á Suðurnesjum.

Veru­lega dreg­ur úr sölu nýrra íbúða

Mikil aukning er á fjölda íbúða á framvindustigi 7 þar sem íbúðum fjölgaði um 493% frá síðustu talningu sem gefur vísbendingar um  að hægar gangi að selja nýjar íbúðir. 777 íbúðir teljast á framvindustiginu og hafa ekki verið svona margar íbúðir á þessu framvindustigi frá því mælingar HMS hófust með þessum hætti í september 2021. Fjölgunin á því framvindustigi nemur 539 íbúða aukning frá síðustu talningu. Íbúðir á framvindustigi 7 eru íbúðir sem eru fullbúnar en ekki teknar í notkun. 225 þeirra eru íbúðir í Reykjavík (29%) en næstflestar eru í Garðabæ eða 135 íbúðir (17,4%).

Enn fleiri fram­kvæmd­ir sem standa í stað

Í nýjustu talningu voru 3.929 íbúðir sem voru með óbreytta framvindu á milli talninga samanborið við 3.159 íbúðir á marstalningu 2023. Á framvindustigi 1 eru 669 íbúðir sem eru með óbreytta framvindu á milli talninga en það er um helmingur af heildarfjölda íbúða í byggingu á fyrsta framvindustigi. Framkvæmdir eru mislengi á hverju framvindustigi og einnig skiptir stærð framkvæmda máli. Framkvæmdir sem voru á framvindustigi 3 á milli talninga fjölgaði um tæplega 30% og einnig á framvindustigi 4.  Þá voru 159 íbúðir fullbúnar í marstalningu ekki teknar í notkun í nýjustu talningu.

Mánaðarskýrsla HMS október 2023

Mánaðarskýrsla HMS október 2023

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS