10. mars 2021

Mánaðarskýrsla hagdeildar HMS fyrir mars 2021

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Fjörugur fasteignamarkaður miðað við árstíma

Fjörugur fasteignamarkaður miðað við árstíma

Alls voru 907 kaupsamningar um íbúðarhúsnæði gefnir út í janúar sem er talsvert minna en í desember síðastliðnum þegar þeir voru 1.154. Sé hins vegar horft á árstíðaleiðréttar tölur fjölgaði kaupsamningum um 4% á milli mánaða, en fjölgunin var mest á höfuðborgarsvæðinu. Ef fjöldi útgefinna samninga er skoðaður eftir mánuði hvers árs má sjá að aldrei áður í janúar hefur verið jafn mikið að gera á íbúðamarkaði og á þessu ári.

Mesta minnkun framboðs hefur verið á höfuðborgarsvæðinu þar sem það fór úr rúmlega 2.200 í um 940 íbúðir, en það hefur aldrei mælst minna eins langt og gögn hagdeildar ná. Frá 1. febrúar síðastliðnum hefur framboðið á höfuðborgarsvæðinu dregist saman um nær 13%. Einnig hefur dregið verulega úr framboði annars staðar á landinu, þótt samdrátturinn þar sé minni en á höfuðborgarsvæðinu.

Verð á sérbýlum hækkar skarpt

Íbúðaverð hefur hækkað talsvert undanfarin misseri. Árshækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu nam 8,3% í janúar miðað við vísitölu paraðra viðskipta og 7,5% miðað við vísitölu söluverðs.[1] Í nágrenni höfuðborgarsvæðisins nam hækkunin 5,8% m.v. vísitölu söluverðs en annars staðar á landsbyggðinni var hækkunin hóflegri eða um 1,6%. Á höfuðborgarsvæðinu var 12 mánaða hækkunin mun meiri á meðal íbúða í sérbýli eða um 10,6% miðað við 6,6% á íbúðum í fjölbýli. Þessu var hins vegar öfugt farið á landsbyggðinni þar sem hækkunin var mun meiri meðal íbúða í fjölbýli.

Vísitala leiguverðs lækkar nokkuð á milli mánaða á höfuðborgarsvæðinu

Tólf mánaða breyting vísitölu HMS fyrir leiguverð mældist -1,3% í janúar á höfuðborgarsvæðinu. Vísitalan lækkar um 0,7% á milli mánaða eftir að hafa staðið í stað í mánuðinum þar á undan. Gildi vísitölunnar er nú svipað og það var í maí 2019.

Í nágrannasveitarfélögum mælist tólf mánaða breytingin 2,5% í janúar en var um 3,9% í desember. Það dregur því úr hækkunartakti leiguverðs á því svæði en hins vegar hækkar vísitalan á milli mánaða um 0,6%. Á öðrum svæðum á landsbyggðinni mælist tólf mánaða breytingin -0,3% í janúar en vísitalan þar stendur nánast í stað á milli mánaða.

Töluvert minni samdráttur í íbúðafjárfestingu en búist var við

Nýbirtar tölur yfir þjóðhagsreikninga Hagstofunnar sýna að samdráttur í íbúðafjárfestingu var umtalsvert minni en búist var við. Til að mynda spáði Seðlabanki Íslands samdrætti upp á  18,8% í nóvember en uppfærði spá sína niður í 6,1% nú í febrúar fyrir árið 2020, því voru það nokkuð óvænt tíðindi að samdrátturinn milli ára hafi ekki verið nema um 1,2%.

Samdráttur í fyrra segir þó ekki alla söguna. Íbúðafjárfesting er enn sögulega há, þrátt fyrir að það hafi dregið aðeins úr henni milli ára. Íbúðafjárfesting hefur einungis tvisvar verið meiri en hún var í fyrra og það var árin 2007 og 2019. Því er ljóst að hún er enn í hæstu hæðum.

 

 

 

Myndir úr skýrslunni má nálgast hér - SVG

Myndir úr skýrslunni má nálgast hér - PNG

 

 

[1] Vísitala paraðra viðskipta tekur einungis til verðbreytinga íbúðarhúsnæðis þegar það er selt aftur. Þar af leiðandi reiknast verðáhrif nýbygginga ekki inn í vísitöluna. Vísitala söluverðs miðast við verðbreytingar í öllum íbúðaviðskiptum.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS