19. febrúar 2026

Mánaðarskýrsla HMS febrúar 2026

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Mánaðarskýrsla HMS fyrir febrúar 2026 er komin út, en hana má nálgast með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að virkni á fasteignamarkaði hafi verið töluverð í fyrra þegar þrettánda hver íbúð á landinu gekk kaupum og sölu. Á undanförnum mánuðum hefur hins vegar kólnað á markaðnum og á höfuðborgarsvæðinu hefur færst í aukana að íbúðir seljist undir auglýstu söluverði. Áfram hægir á verðhækkunum á leigumarkaði og samþykktum umsóknum um húsnæðisbætur hefur fjölgað talsvert undanfarið samhliða rýmkunum á skerðingarmörkum vegna tekna og eigna.

Mánaðarskýrsla HMS

Myndir að baki mánaðarskýrslu

Fleiri íbúð­ir selj­ast und­ir aug­lýstu sölu­verði

Fasteignamarkaðurinn sýnir áfram merki kólnunar, en samhliða minni íbúðaverðshækkunum og vaxandi framboði íbúða til sölu seljast hlutfallslega fleiri íbúðir á höfuðborgarsvæðinu undir auglýstu söluverði. Þetta er í samræmi við niðurstöður úr könnun HMS meðal fasteignasala, en þeir telja nær allir að verðþróun á markaðnum sé ýmist stöðug eða að verð fari lækkandi.  Vísitala íbúðaverðs hefur nú lækkað að raunvirði á ársgrundvelli undanfarið hálft ár.

Talsverð virkni var á fasteignamarkaði árið 2025 þegar tæplega 12 þúsund eignir gengu kaupum og sölu, eða um það bil þrettánda hver íbúð á landinu. Undanfarinn áratug hefur virkni verið hlutfallslega mest á Suðurnesjum, þar sem fólksfjölgun hefur verið kröftug og íbúðauppbygging mikil. Innan höfuðborgarsvæðisins hefur virknin verið hlutfallslega mest í Garðabæ og Hafnarfirði þar sem mikið hefur verið byggt á undanförnum árum.

Sam­þykkt­um um­sókn­um um hús­næð­is­bæt­ur fjölg­ar með rýmri skerð­ing­ar­mörk­um

Á leigumarkaði heldur áfram að hægja á verðhækkunum en vísitala leiguverðs hefur lækkað tvo mánuði í röð. Á undanförnum 12 mánuðum hefur leiguverð lækkað lítillega að raunvirði.

Skerðingarmörk húsnæðisbóta vegna tekna og eigna hafa hækkað nokkrum sinnum á undanförnum árum sem hefur leitt til þess að fleiri heimili eiga rétt á húsnæðisbótum. Samhliða hefur samþykktum umsóknum um húsnæðisbætur fjölgað markvert á milli ára.

Líf­eyr­is­sjóð­ir um­svifa­meiri en bank­ar í fyrra

Lánamarkaðurinn hefur einkennst af miklum umsvifum lífeyrissjóða undanfarin misseri, en tæplega 75% hreinna nýrra íbúðalána til heimila á árinu 2025 voru tekin hjá þeim. Þetta er í fyrsta skiptið síðan árið 2019 sem hreinar nýjar lánveitingar banka til heimila eru minni en lífeyrissjóða.

Lán­taka eykst í bygg­ing­ar­iðn­aði en minnk­ar ann­ars stað­ar

Byggingamarkaðurinn sýnir jafnframt merki kólnunar, en starfsfólki í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð hefur fjölgað lítið sem ekkert á meðan atvinnulausum hefur fjölgað og lausum stöfum hefur fækkað. Hrein ný lántaka í byggingargeiranum jókst um 70% á milli ára á meðan hún dróst saman um 21% í öðrum atvinnugreinum. Útistandandi lán til byggingariðnaðarins hafa jafnframt aukist á síðustu mánuðum samhliða dræmri sölu nýrra íbúða sem getur leitt til skuldaaukningar vegna uppsöfnunar áfallinna vaxta.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS