20. ágúst 2026
Mánaðarskýrsla HMS ágúst 2026
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Mánaðarskýrsla HMS fyrir ágúst 2026 er komin út, en hana má nálgast með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að fasteignamarkaðurinn hafi verið kaldari á fyrri helmingi þessa árs heldur en á sama tímabili í fyrra, með lengri sölutíma og minni verðþrýstingi. Á byggingarmarkaði megi greina merki kólnunar, en útgefnum byggingarleyfum fyrir nýjar íbúðir hefur fækkað á milli ára.
Mánaðarskýrsla HMS
Myndir að baki mánaðarskýrslu
Hlutfallslega fáar íbúðir seljast yfir auglýstu söluverði
Fasteignamarkaðurinn var kaldari á fyrri helmingi þessa árs heldur en á sama tímabili í fyrra. Færri kaupsamningum um íbúðarhúsnæði hefur verið þinglýst í ár og það hefur að jafnaði tekið lengri tíma að selja íbúðir alls staðar á landinu. Hlutfall íbúða sem seljast yfir auglýstu söluverði hefur jafnframt lækkað á undanförnum misserum og nálgast nú það sem þekktist fyrir heimsfaraldur á höfuðborgarsvæðinu.
Greiðslur af óverðtryggðum íbúðalánum hafa orðið viðráðanlegri á síðustu árum samhliða vaxtalækkunum og launahækkunum umfram íbúðaverðshækkanir, á meðan greiðslubyrði af verðtryggðum lánum hefur staðið nokkurn veginn í stað. Greiðslubyrði nýrra húsnæðislána, bæði verðtryggðra og óverðtryggðra, er þó enn þung í sögulegu samhengi.
Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu stendur áfram í stað að raunvirði
Leigumarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hefur að mestu leyti þróast í takt við almennt verðlag undanfarin misseri, en tólf mánaða raunhækkun vísitölu íbúðaverðs hefur dansað í kringum núllið undanfarna mánuði. Leiguverð virðist hafa hækkað meira á landsbyggðinni heldur en innan höfuðborgarsvæðisins.
Hlutdeild óverðtryggðra lána af útistandandi lánum stendur í stað
Lánamarkaðurinn einkennist enn að miklu leyti af verðtryggðum útlánum til heimilanna. Hlutdeild óverðtryggðra lána af útistandandi lánum til heimila hefur staðið í stað frá áramótum, en bankarnir hafa lánað meira óverðtryggt og lífeyrissjóðirnir hafa lánað meira verðtryggt.
Samkeppni á íbúðalánamarkaði er á milli fárra aðila, þótt alls 20 lánastofnanir bjóði upp á húsnæðislán á Íslandi þessa stundina. Stærsti lánveitandinn á íbúðalánamarkaði er Landsbankinn, en virði útistandandi íbúðalána bankans var meira en hjá öllum lífeyrissjóðunum til samans í lok síðasta árs.
Færri byggingarleyfi gefin út fyrir byggingu nýrra íbúða
Byggingarmarkaðurinn sýnir merki um kólnun, þar sem færri byggingarleyfi hafa verið gefin út fyrir uppbyggingu nýrra íbúðarhúsa í ár, ef miðað er við fyrri ár. Betri upplýsingar um stöðu íbúðauppbyggingar fást í næstu talningu HMS á íbúðum í byggingu sem kynnt verður í septembermánuði.
Fólksfjölgun síðastliðna 12 mánuði er nálægt lágspá sveitarfélaganna. Ef fram heldur sem horfir má búast við að íbúðaþörf verði jafnframt í samræmi við lágspár sveitarfélaganna úr húsnæðisáætlunum sem hljóðar upp á 2.610 íbúðir.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS



