13. maí 2025
17. ágúst 2022
Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu í júlí 2022
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 218,9 stig í júlí 2022 (janúar 2011=100) og stendur í stað frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 0,6% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 7,4%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.
Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.
Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Fasteignagátt Þjóðskrár.
Leiguverð
Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í júlí 2022.
Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 699 samningar, sem þinglýst var í júlí 2022. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í júlí 2022 eru því unnar upp úr 471 leigusamningum sem þinglýst var í júlí 2022.
Eftirfarandi listi sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í júlí 2022 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.
Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes
- Stúdíó íbúð: 5049
- 2 herbergi: 3437
- 3 herbergi: 3077
- 4-5 herbergi: 2998
Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar
- Stúdíó íbúð: 4369
- 2 herbergi: 3237
- 3 herbergi: 3069
- 4-5 herbergi: 2628
Kópavogur
- Stúdíó íbúð: 3336
- 2 herbergi: 3421
- 3 herbergi: 2695
- 4-5 herbergi: 2358
Garðabær og Hafnarfjörður
- Stúdíó íbúð: 4712
- 2 herbergi: 3200
- 3 herbergi: 2830
- 4-5 herbergi: 2251
Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur
- 2 herbergi: 3060
- 3 herbergi: 2934
- 4-5 herbergi: 2467
Breiðholt
- Stúdíó íbúð: 3658
- 2 herbergi: 2901
- 3 herbergi: 2742
- 4-5 herbergi: 2479
Kjalarnes og Mosfellsbær
- 3 herbergi: 2618
Suðurnes
- 2 herbergi: 2805
- 3 herbergi: 2100
Vesturland
- 3 herbergi: 2227
- 4-5 herbergi: 1643
Vestfirðir
Norðurland nema Akureyri
- 3 herbergi: 2029
- 4-5 herbergi: 1301
Akureyri
- 2 herbergi: 2549
- 3 herbergi: 2123
- 4-5 herbergi: 1847
Austurland
Suðurland
- 2 herbergi: 2470
- 3 herbergi: 2158
- 4-5 herbergi: 2140
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS