1. október 2026

Leigjendur af erlendum uppruna upplifa minna húsnæðisöryggi

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Leigjendur búa lengur í sama húsnæði og flytja sjaldnar á milli íbúða en áður
  • Aðfluttir leigjendur greiða að jafnaði hærra hlutfall af ráðstöfunartekjum heimilisins í leigu heldur en íslenskir leigjendur
  • Sjö af hverjum tíu leigjendum af erlendum uppruna leigja af einstaklingum

Vísbendingar eru um að aðstæður á leigumarkaði hafi batnað lítillega með tilliti til framboðs af leiguhúsnæði og verðþrýstings undanfarin ár. Leigjendur búa að jafnaði lengur í sama húsnæðinu nú en áður, sem stuðlar að húsnæðisöryggi. Stór hluti leigjenda býr þó við íþyngjandi húsnæðiskostnað, sem er algeng ástæða húsnæðisóöryggis. Leigjendur af erlendum uppruna upplifa minna húsnæðisöryggi en íslenskir leigjendur og leigja oftar herbergi, bílskúra, deilihúsnæði og atvinnuhúsnæði.

Þetta er á meðal þess sem fjallað er um í samantekt á niðurstöðum leigumarkaðskönnunar HMS fyrir árið 2026. Samantektina í heild sinni má nálgast með því að smella á hnappinn hér að neðan

Leigumarkaðskönnun HMS 2026

Samantekt á helstu niðurstöðum

Leigj­end­ur búa að jafn­aði leng­ur í sama hús­næð­inu nú en áður

Leigjendur hafa að jafnaði búið í rúm fjögur ár í því húsnæði sem þeir búa í núna, en sá tími hefur lengst undanfarin ár. Til samanburðar höfðu leigjendur að jafnaði búið í tæplega tvö og hálft ár í þáverandi húsnæði árið 2020. Árið 2015 mældist meðaltíminn í þáverandi húsnæði tæplega þrjú ár.

Á sama tíma og meðaltími í núverandi húsnæði hefur lengst hefur meðaltíðni flutninga smám saman farið lækkandi undanfarin ár. Niðurstöður nýjustu könnunarinnar gefa til kynna að leigjendur hafi að meðaltali flutt rétt rúmlega þrisvar sinnum á síðastliðnum 10 árum, en árið 2018 höfðu leigjendur að meðaltali flutt tæplega fjórum sinnum á tíu ára tímabili þar á undan.

Eftir því sem leigjendur hafa búið lengur í núverandi húsnæði og flutt sjaldnar á síðastliðnum 10 árum upplifa þeir að jafnaði meira húsnæðisöryggi. Þeir leigjendur sem telja sig ekki búa við húsnæðisöryggi nefna tímabundna leigusamninga og mögulega sölu þess íbúðarhúsnæðis sem þeir hafa búsetu í meðal helstu ástæðna húsnæðisóöryggis.  

Tæp­lega helm­ing­ur leigj­enda býr við íþyngj­andi leigu­byrði

Algengast er að leiga nemi á bilinu 30 til 39% af ráðstöfunartekjum heimila samkvæmt niðurstöðum leigumarkaðskönnunarinnar. Um 20% greiða á bilinu 20 til 29% af ráðstöfunartekjum heimilisins í leigu á meðan um 8% greiða minna en fimmtung tekna í leigu.

Húsnæðiskostnaður telst almennt íþyngjandi ef hann nemur meira en 40% af ráðstöfunartekjum heimilis. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar býr um 45% leigjenda við íþyngjandi leigubyrði þegar einungis er tekið tillit til leigufjárhæðar en ekki annars húsnæðiskostnaðar. Þar af greiða um 13% leigjenda meira en 60% ráðstöfunartekna heimilisins í leigu.

Leigjendur greiddu að meðaltali um 43% af ráðstöfunartekjum sínum í leigu í maí samkvæmt könnuninni. Leigjendur af erlendum uppruna greiddu að jafnaði hærra hlutfall tekna sinna í leigu en leigjendur af íslenskum uppruna, eða 45% samanborið við 38%, sé einungis litið til leigjenda sem eru virkir þátttakendur á vinnumarkaði.

Að­flutt­ir leigj­end­ur eru lík­legri til að leigja her­bergi, deili­í­búð­ir, bíl­skúra og at­vinnu­hús­næði

Einstaklingar eru umfangsmestu leigusalarnir hér á landi, en rúmlega helmingur leigjenda segist leigja íbúð af einstaklingi. Sé eingöngu litið til leigjenda sem eru virkir á vinnumarkaði er hlutfallið um 60%. Leigjendur af erlendum uppruna eru talsvert líklegri en leigjendur af íslenskum uppruna til að leigja af einstaklingum, en um 70% aðfluttra leigjenda leigja af einstaklingum samanborið við um 50% meðal innfæddra leigjenda.

Niðurstöður könnunarinnar benda til þess að leigjendur af erlendum uppruna séu talsvert líklegri en leigjendur af íslenskum uppruna til að leigja herbergi, bílskúra, deilihúsnæði, aukaíbúðir í einbýlishúsum, atvinnuhúsnæði eða annars konar húsnæði. Líkt og sjá má á myndinni hér að neðan leigja aðfluttir leigjendur slíkt húsnæði í um 24% tilvika, samanborið við um 9% tilvika meðal innfæddra leigjenda, ef einungis er litið til leigjenda sem eru virkir á vinnumarkaði.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS