8. júlí 2025
1. mars 2022
Kolefnislosun íslenskra bygginga: Opinn Teams-fundur 9. mars kl. 12
Árleg losun íslenskra bygginga hefur verið metin í fyrsta sinn. Sigríður Ósk Bjarnadóttir og Björn Marteinsson birtu niðurstöðurnar í skýrslunni Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð 2030. I. hluti: Mat á kolefnislosun frá íslenskum byggingariðnaði, sem gefin var út í febrúar á vegum samstarfsverkefnisins Byggjum grænni framtíð.

Sigríður og Björn munu kynna skýrsluna og svara spurningum fundargesta, á opnum kynningarfundi sem fram fer á Teams, 9. mars kl. 12-13.
Helstu niðurstöður eru eftirfarandi:
- Árleg losun íslenskra bygginga er um 360 þúsund tonn CO2íg.
- Byggingarefni, einkum steypa, er áhrifaríkasti þátturinn í kolefnisspori íslenskra bygginga.
- 30% af kolefnissporinu stafar frá orkunotkun á rekstrartíma bygginganna.
Á grundvelli þessarar vinnu geta mannvirkjageirinn og stjórnvöld sett sameiginleg markmið um minni losun og skilgreint aðgerðaáætlun til að ná þeim markmiðum.
Nánari upplýsingar um skýrsluna og Byggjum grænni framtíð má nálgast á heimasíðu Byggjum grænni framtíð.
Verið öll velkomin!