26. október 2026

Skipulagsmál á þriðja ársfjórðungi

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Á þriðja ársfjórðungi má greina þó nokkuð mikla uppbyggingu í Reykjanesbæ þar sem áform eru um alls 981 íbúð í þremur deiliskipulagstillögum
  • Áform um uppbyggingu ferðaþjónustu á Suðurlandi eru áberandi í stærri málum eins og t.d. á ferðamanna og náttúrusvæðum þar sem eru áform um framkvæmdir til verndar og eða bæta aðstöðu fyrir ferðafólk
  • 770 skipulagsmál hafa komið inn á Skipulagsgátt það sem af er ári, málin eru fjölbreytt og á ólíkum stigum í ferlinu

 

Íbúðarbyggð algengasta viðfangsefni skipulagsmála

Langflest þeirra mála sem komið hafa inn í Skipulagsgátt í ár fjalla um íbúðarbyggð. Landbúnaður, verslun og þjónusta og frístundabyggð er líka áberandi. Listinn er ekki tæmandi en sýnir að um fjölbreytt viðfangsefni er að ræða. Jafnframt þarf að hafa í huga að oft er um að ræða blandaða landnotkun t.d. getur skipulag á landbúnaðarsvæði og á miðsvæðum snúið að uppbyggingu íbúða í einhverri mynd.

Tveir landshlutar skera sig úr varðandi fjölda skipulagsmála en það eru höfuðborgarsvæðið og Suðurland.  

 

Umfangsmiklar deiliskipulagsáætlanir á borði HMS á þriðja ársfjórðungi

Hér að neðan má sjá dæmi um stærri verkefni á þriðja ársfjórðungi. Skipta má málunum niður í þrjá flokka eftir tegund áforma.

Ferðaþjónusta/gististarfsemi

Í nokkrum málum má sjá áform um að bæta aðbúnað við náttúrusvæði og vernda fyrir ágangi og eða í þeim tilgangi að bæta aðstöðu fyrir ferðafólk. Dæmi um slík áform er deiliskipulag við Þórufoss í Kjós, Landmannahelli í Rangárþingi Ytra og við Sigöldugljúfur í Rangárþingi Ytra.

Þá eru áform um ferðaþjónustuuppbyggingu í Skaftárhreppi og í Hornafirði. Má þar nefna deiliskipulag fyrir jörðina Horn, þar sem helsta aðdráttaraflið er eftirmynd af víkingaþorpi. Áform eru um fjölorkustöð og þjónustumiðstöð í Skaftafelli II, og í landi Heiðarsels í Skaftárhreppi er stefnt að uppbyggingu 220 herbergja hótels með gistiaðstöðu fyrir 500 gesti.  

Hér að neðan má sjá hlekki á einstök mál á Skipulagsgátt:

Deiliskipulag við Þórufoss

Landmannahelli  

Sigöldugljúfur

Skálasvæði í Tjaldafelli

Nýtt deiliskipulag fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu á Horni í Hornafirði

Deiliskipulag nýrrar fjölorkustöðvar og þjónustumiðstöðvar í Skaftafelli II

Deiliskipulag ferðaþjónustu, tvö hótel og gistiskála fyrir 500 gesti í landi Heiðarsels í Skaftárhreppi

 

Samgöngu- og innviðaverkefni

Samgöngu- og innviðaverkefni voru áberandi á tímabilinu. Má þar nefna tvöföldun Suðurlandsvegar frá Bæjarhálsi að Hólmsá.

Þá voru áætlanir um stækkanir eða breytingar á þremur hafnarsvæðum. Fram komu tvær deiliskipulagsáætlanir um hesthúsasvæði. Þá eru uppi áform um stækkun gagnavers Verne Global í Reykjanesbæ.

Hér að neðan má sjá meira um einstök mál á Skipulagsgátt:

Tvöföldun Suðurlandsvegar frá Bæjarhálsi að Hólmsá

Stækkun gagnarvers Verne Global í Reykjanesbæ

Stækkun hafnarsvæðis í Ölfusi til austurs

Breyting á deiliskipulagi hafnarsvæðis á Patreksfirði

Deiliskipulag hafnarsvæðis á Árskógssandi

Deiliskipulag hesthúsasvæðis á Selfossi

Breyting og stækkun á deiliskipulagi hesthúsasvæðis og golfvallar á Vorsabæjarvöllum í Hveragerði

 

Þéttbýli/íbúðarhúsnæði

Hér sker Reykjanesbær sig úr á tímabilinu. Þar sem á borði HMS voru þrjár deiliskipulagsáætlanir sem telja samtals 981 íbúð. Hverfin eru Suðurbrautarreitur á Ásbrú, 270 íbúða hverfi, Hlíðarhverfi 3. áfangi og Suðurbrekkureitur, Ásbrú þar sem gert er ráð fyrir allt að 219 íbúðum.

Hér að neðan má sjá einstök mál á Skipulagsgátt:

Deiliskipulag fyrir Borðeyri, verndarsvæði í byggð

Nýtt deiliskipulags miðsvæðis á Kirkjubæjarklaustri

Suðurbrautarreitur á Ásbrú, Reykjanesbæ

Hliðarhverfi 3. áfangi, Reykjanesbæ

Nýtt íbúðahverfi, Suðurbrekkureitur

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS