15. október 2026
Hvenær má taka mannvirki í notkun?
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Öryggisúttekt þarf að hafa farið fram með jákvæðri niðurstöðu og vottorð verið gefið út áður en heimilt er að taka mannvirki í notkun
- Eigandi mannvirkis ber ábyrgð á að lögboðið eftirlit fari fram en byggingarstjóri óskar að jafnaði eftir öryggisúttekt fyrir hans hönd
- Óheimilt er að taka mannvirki í notkun án öryggisúttektarvottorðs og getur það leitt til lokunar mannvirkis, sekta og annarra þvingunarúrræða
Forsenda þess að taka megi mannvirki í notkun er að öryggisúttekt hafi verið framkvæmd, niðurstöður hennar séu jákvæðar og vottorð gefið út sem staðfesti að mannvirkið uppfylli öryggis- og hollustukröfur laga og reglugerða.
Sá sem flytur inn í eða tekur mannvirki í notkun áður en öryggisúttekt hefur farið fram og tilskilið vottorð liggur fyrir brýtur gegn skýrum ákvæðum laga um mannvirki. Í slíkum tilvikum ber byggingarfulltrúum sveitarfélaga að bregðast við og hafa þeir yfir víðtækum stjórnsýslu- og þvingunarúrræðum að ráða sem geta haft alvarlegar fjárhagslegar og réttarfarslegar afleiðingar fyrir eigendur.
Hver ber ábyrgð á að óska eftir úttekt?
Eigandi mannvirkis ber ábyrgð á því að lögboðið eftirlit með byggingu þess fari fram. Það er þó á hendi byggingarstjóra að óska eftir öryggisúttekt fyrir hönd eiganda þegar mannvirki er tilbúið í slíka úttekt en eigandi getur einnig óskað eftir úttektinni.
Sinni hvorki byggingarstjóri né eigandi þessari skyldu getur byggingarfulltrúi boðað til úttektar.
Byggingarfulltrúi framkvæmir öryggisúttektina en auk hans og byggingarstjóra skal fulltrúi slökkviliðs einnig vera viðstaddur. Í vottorði öryggisúttektar skal m.a. koma fram með skýrum hætti hvaða mannvirki var tekið út, hvenær og hverjir voru viðstaddir. Í kjölfar jákvæðrar úttektar gefur byggingarfulltrúi út skýrslu og vottorð henni til staðfestingar, skráir gögnin í gagnagrunn HMS og notkun mannvirkis þá orðin heimil.
Hvað ef aðeins á að taka hluta mannvirkis í notkun?
Heimilt er að taka hluta mannvirkis í notkun í kjölfar jákvæðrar niðurstöðu öryggisúttektar fyrir þann hluta og útgáfu vottorðs henni til staðfestingar.
Í vottorði skal þá tilgreina með skýrum hætti til hvaða hluta mannvirkisins úttektin nær ásamt stöðu annarra hluta mannvirkisins.
Öryggisúttekt og lokaúttekt gegna ólíku hlutverki
Ítarlega er fjallað um kröfur til öryggis- og lokaúttekta í lögum um mannvirki, byggingarreglugerð og Viðauka II við byggingarreglugerð. Í stuttu máli má þó segja að:
- Framkvæmd öryggisúttektar og útgáfa vottorðs henni til staðfestingar er grundvöllur þess að hefja megi notkun mannvirkis m.t.t. brunavarna, öryggis-, aðgengis- og hollustuhátta.
- Framkvæmd lokaúttektar og útgáfa vottorðs henni til staðfestingar er endanleg staðfesting á því að mannvirkið teljist fullgert og í samræmi við lög, reglugerðir og samþykkta hönnun.
Lokaúttekt skal fara fram innan þriggja ára frá útgáfu öryggisúttektarvottorðs en úttektirnar mega þó fara fram samtímis.
Óheimil notkun mannvirkis
Ef mannvirki er tekið í notkun án þess að öryggisúttekt hafi farið fram, niðurstaða hennar jákvæð og vottorð gefið út veita mannvirkjalögin byggingarfulltrúa skýra heimild til að stöðva notkunina tafarlaust og fyrirskipa lokun mannvirkisins.
Ef eigandi eða umráðamaður sinnir ekki fyrirmælum um lokun, er lögreglu skylt samkvæmt lögunum að veita byggingarfulltrúa aðstoð við að framfylgja aðgerðunum.
Sektir og framkvæmd á kostnað eiganda
Láti eigandi mannvirkis ekki segjast við stöðvun eða lokun, eða sinni hann ekki kröfu um að ljúka öryggisúttekt, fela mannvirkjalög byggingarfulltrúa frekari fjárhagsleg þvingunarúrræði:
- Beiting stjórnvaldssekta:
Byggingarfulltrúi getur lagt á stjórnvaldssektir á einstakling eða lögaðila sem tekur mannvirki í notkun án þess að öryggisvottorð hafi verið gefið út. - Beiting dagsekta:
Byggingarfulltrúi getur ákveðið að beita dagsektum til að knýja eiganda til að bæta úr frávikum og ljúka öryggisúttekt. - Framkvæmd úrbóta á kostnað eiganda:
Heimilt er að láta vinna nauðsynlegar úrbætur eða stöðva starfsemi á kostnað eiganda. - Lögveð í eigninni:
Sveitarfélag eða ríkið á endurkröfu á eiganda vegna alls kostnaðar sem hlýst af úrbótum, og fylgir kröfunni trygging í formi lögveðs í mannvirkinu og lóðinni.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




