8. maí 2025
8. október 2021
Húsnæðisáætlanir sveitarfélaga fyrir næsta ár, árið 2022, verða alfarið stafrænar
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Forstjóri HMS: „Almenningur tapar á stórum sveiflum á húsnæðismarkaði“
- Húsnæðisáætlanir sveitarfélaga fyrir næsta ár, árið 2022, verða alfarið stafrænar
- Þetta mun auðvelda samanburð og aðgengi allra leikenda á húsnæðismarkaði
- Forstjóri HMS: „Húsnæðisáætlanir sveitarfélaga hafa reynst eitt stærsta framfaraskref á húsnæðismarkaði síðustu ára“
Húsnæðisáætlanir sveitarfélaganna verða stafrænar og á stöðluðu formi frá og með næsta ári. Það mun auðvelda gerð þeirra og gera stjórnvöldum betur kleift að bera saman áætlanir ólíkra sveitarfélaga. Hermann Jónasson, forstjóri Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) tilkynnti um þetta á fjölmennri fjármálaráðstefnu sveitarfélaga sem fram fór á Hilton Reykjavík Nordica í dag.
Nýverið var farið að gera kröfu til sveitarfélaga um að gera sérstaka áætlun um húsnæðisþörf og uppbyggingu árlega og þótt þær væru ekki stafrænar frá byrjun, þá hafa þær reynst afar mikilvægt tól við stefnumótun og ákvarðanatöku stjórnvalda. Með því að skila áætlununum á stöðluðu, rafrænu formi næst betri yfirsýn yfir stöðu og horfur á húsnæðismarkaði. Með almennri aukinni stafrænni stjórnsýslu í þessum málaflokki er gert ráð fyrir bættum gæðum í íbúðaspám, sem aftur þýði minni sveiflur á næstu árum. Húsnæðisáætlanir eru að mati allra helstu sérfræðinga hér á landi mikilvægasta tækið, bæði fyrir einkaaðila og stjórnvöld, til að taka ákvarðanir sem snúa að húsnæðismarkaði.
Sveitarfélögin fá aðhald
HMS hefur boðað fundi með sveitarfélögunum nú í október þar sem farið verður betur yfir þetta nýja fyrirkomulag. Í kjölfarið hyggst stofnunin hefja samstarf með sveitarfélögunum um breytt verklag sem stuðli að því að öllum húsnæðisáætlunum fyrir árið 2022 verði skilað stafrænt í gegnum áætlanakerfi HMS.
Í erindi sínu á fjármálaráðstefnunni í morgun sagði Hermann húsnæðisáætlanir sveitarfélaga vera gríðarlega mikilvægar og eitt stærsta framfaraskref á húsnæðismarkaði síðustu ára. „Stóra verkefnið okkar er að stuðla að auknum stöðugleika á húsnæðismarkaði og það gerum við með þessum tólum. Því að hverjir tapa í þessum sveiflum sem við erum að horfa á ár eftir ár? Það er fólkið. Það er okkar skylda að breyta því. Vera með skýrar áætlanir og hafa hugrekki til þess að fylgja þeim eftir.“
Upptöku frá ráðstefnunni má nálgast hér en erindi Hermanns hefst á 57:42 mín.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS