20. febrúar 2026

HMS og Skipulagsstofnun sameinast

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Ný sameinuð stofnun heitir Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun og er skammstöfuð HMS
  • Allur ferill mannvirkjagerðar er nú á höndum einnar stofnunar
  • Markmið sameiningar er að efla getu hins opinbera í skipulags- og húsnæðismálum

Alþingi hefur samþykkt lög sem fela í sér sameiningu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og Skipulagsstofnunar í eina öfluga stofnun á sviði húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsmála. Með sameiningunni flyst starfsemi Skipulagsstofnunar inn í sameinaða stofnun.

Fyrir sameiningu störfuðu um 150 starfsmenn hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun á þremur starfsstöðvum víðs vegar um landið, og um 25 starfsmenn hjá Skipulagsstofnun. Með sameiningunni eru starfsmenn Skipulagsstofnunar orðnir hluti af nýrri og stærri stofnun sem ber nú heitið Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS).

Sameiningin felur í sér að allur ferill mannvirkjagerðar, frá fyrsta stigi skipulags til fullbúins mannvirkis, er á höndum einnar stofnunar. Markmiðið er að efla getu hins opinbera í skipulags- og húsnæðismálum, auka yfirsýn, styrkja tengsl við sveitarfélög og skapa heildstæðari og skilvirkari stjórnsýslu.

Félags- og húsnæðismálaráðherra leggur áherslu á að sameiningin styrki stoðir málaflokksins og mæti auknum kröfum samfélagsins um yfirsýn í þróun byggðar, sjálfbæra landnotkun og ráðstöfun auðlinda á sama tíma og dregið verður úr tvíverknaði og samþætting eykst.

HMS fagnar sameiningunni og lítur á hana sem tækifæri til að efla þjónustu, styrkja faglega hæfni innan stofnunarinnar og tryggja heildstæða nálgun á öllum stigum skipulags- og mannvirkjagerðar með enn öflugra teymi starfsmanna.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS