22. maí 2025
7. mars 2024
Breytt verklag varðandi staðfestingar HMS á nothæfi brunahólfandi innihurða
Um mánaðamótin mars-apríl tekur gildi tveggja ára aðlögunartími vegna breytt verklags á staðfestingum á nothæfi brunahólfandi innihurða. Breytt verklag á að tryggja samræmda og skilvirka afgreiðslu sem uppfyllir skilyrði gildandi laga og er jafnframt til þess fallið að undirbúa innlenda framleiðendur fyrir það ef gefinn verður út samhæfður vörustaðall fyrir innihurðir. Að tveimur árum liðnum, 1. apríl 2026, falla úr gildi þær staðfestingar á nothæfi hurða sem ekki uppfylla kröfur nýs verklags.
Að aðlögunartímanum liðnum þurfa allar umsóknir að uppfylla skilyrði annars hvors eftirfarandi þátta, eftir því sem við á.
Staðfesting á nothæfi (fyrir þarf að liggja):
1. Yfirlýsing um nothæfi á íslensku
2. Skýrsla um gerðarprófun
3. Leiðbeiningar um notkun og upplýsingar um öryggi
4. Umboð frá framleiðanda (á við ef annar aðili en framleiðandi hurðar óskar staðfestingar á nothæfi)
Gagnkvæm viðurkenning gagna (fyrir þarf að liggja):
1. Staðfesting á nothæfi frá viðurkenndum aðila á EES svæðinu
2. Yfirlýsing um nothæfi á íslensku
3. Leiðbeiningar um notkun og upplýsingar um öryggi á íslensku
4. Skýrsla um gerðarprófun (heimilt að kalla eftir)
Nánari upplýsingar má finna á vef HMS