2. júlí 2024

Greiðsla húsnæðisbóta í júní 2024

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

HMS greiddi rúmar 1.050 milljónir króna í húsnæðisstuðning til leigjenda 1. júlí 2024. Um 1.040 milljónir króna voru vegna leigu í júní, en þar af voru rúmlega 173 milljónir greiddar til stuðnings fyrir Grindvíkinga vegna leigu í júní. Um þrjár tegundir af stuðningi er að ræða, sértækan stuðning fyrir Grindvíkinga, húsnæðisbætur og sérstakan húsnæðisstuðning fyrir Kópavog og Skagafjörð.

 

Sér­tæk­ur hús­næð­is­stuðn­ing­ur vegna nátt­úru­ham­fara í Grinda­vík­ur­bæ

Framkvæmd sértæks húsnæðisstuðnings til Grindvíkinga hefur verið á ábyrgð HMS frá því að úrræðið tók gildi í desember á síðasta ári. Stuðningnum er ætlað að styðja við Grindvíkinga vegna náttúruhamfara sem hafa leitt til þess að íbúar Grindavíkur hafa þurft að yfirgefa heimili sín. HMS greiðir stuðninginn til þeirra íbúa sem hafa neyðst til að leigja húsnæði til íbúðar utan Grindavíkur og er greiddur mánaðarlega. Alls voru um 176 milljónir króna greiddar til 760 umsækjenda og þar af voru 173 milljónir króna vegna júnímánaðar.

 

Al­menn­ar hús­næð­is­bæt­ur

Húsnæðisbótum er ætlað að styðja tekju- og eignalága einstaklinga vegna leigu á íbúðarhúsnæði og eru þær greiddar mánaðarlega. Í kjölfar breytingu á lögum um húsnæðisbætur sem tók gildi 1. júní sl. hækkaði greiðsla húsnæðisbóta um 147 milljónir frá síðasta mánuði, þar sem grunnfjárhæðir húsnæðisbóta hækkuðu um fjórðung, auk þess sem bæturnar taka nú til fleiri heimilismanna og skerðingamörk vegna eigna eru hærri. Heildargreiðsla húsnæðisbóta nam um 853 milljónum króna til 15.945 umsækjenda og þar af voru 845 milljónir króna vegna leigu í júnímánuði.

 

Sér­stak­ur hús­næð­is­stuðn­ing­ur fyr­ir Kópa­vog og Skaga­fjörð

Greiðsla sérstaks húsnæðisstuðnings fyrir sveitarfélögin Skagafjörð og Kópavog er framkvæmd af HMS sem hluti tilraunaverkefnis stjórnvalda. Sérstakur húsnæðisstuðningur er á forræði sveitarfélaganna og felur í sér aukinn stuðning við þá sem sökum fjárhagslegra- eða félagslegra aðstæðna eiga erfitt með að standa straum af húsnæðiskostnaði. Greiddar voru alls 22 milljónir króna til 929 umsækjenda í Kópavogi og 78 umsækjenda í Skagafirði.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS