24. febrúar 2026

Fjölbreyttar lausnir í byggðakjörnum utan höfuðborgarsvæðisins

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • HMS undirritaði viljayfirlýsingu með félags- og húsnæðismálaráðherra og sveitarfélögum um öfluga húsnæðisuppbyggingu á landsbyggðinni
  • Húsnæðismarkaðurinn á Akureyri hefur verið virkari en á höfuðborgarsvæðinu þrátt fyrir að aðgengi fyrstu kaupenda hafi verið minna
  • Ný húsnæðisáætlun Akureyrarbæjar gerir ráð fyrir áframhaldandi íbúafjölgun og mikilli íbúðaþörf til næstu tíu ára

Opinn fundur um húsnæðismál á Norðurlandi eystra var haldinn á skrifstofu HMS á Akureyri í dag. Á fundinum undirritaði Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, viljayfirlýsingu með HMS og Sambandi íslenskra sveitarfélaga um öfluga húsnæðisuppbyggingu um allt land.

Mark­mið­ið er að styðja við fjöl­breytt­ar lausn­ir á lands­byggð­inni

Fundurinn var vel sóttur, en á honum fór Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar, einnig yfir nýjustu húsnæðisáætlun bæjarins, auk þess sem HMS greindi frá stöðu og þróun húsnæðismarkaðarins í landshlutanum.

Markmið viljayfirlýsingarinnar sem ráðherra undirritaði er að styðja við fjölbreyttar húsnæðislausnir í byggðakjörnum utan höfuðborgarsvæðisins. Jafnframt er lögð áhersla á að styðja við byggingu íbúðarhúsnæðis fyrir alla hópa samfélagsins í samræmi við þá íbúðaþörf sem húsnæðisáætlanir sveitarfélaganna gera ráð fyrir.

Frá fundi HMS á Akureyri í dag.

„Samstarf milli opinberra aðila er forsenda öflugrar húsnæðisuppbyggingar um land allt,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra. „Markmiðið með viljayfirlýsingunni er að auka aðgengi fyrstu kaupenda á landsbyggðinni að íbúðum sem falla undir hlutdeildarlán og efla leigumarkaðinn utan höfuðborgarsvæðisins. Hvort tveggja er afar mikilvægt. Einnig er mikilvægt að stuðla að uppbyggingu á svokölluðum köldum markaðssvæðum.“

Virk­ur mark­að­ur á Ak­ur­eyri en að­gengi fyrstu kaup­enda minna

Húsnæðismarkaðurinn á Akureyri hefur verið virkari en á höfuðborgarsvæðinu, ef tekið er tillit til stærðar markaðssvæðanna. Tæplega 9% fasteigna á Akureyri gengu kaupum og sölu á síðasta ári, samanborið við 7% á höfuðborgarsvæðinu.

Aðgengi fyrstu kaupenda að húsnæðismarkaðnum hefur hins vegar verið minna á Akureyri. Fyrstu kaupendur koma að fjórða hverjum kaupsamningi á Akureyri, en um þriðja hverjum kaupsamningi á höfuðborgarsvæðinu. Á sama tíma eru helmingi fleiri vannýttar íbúðir á Akureyri en á höfuðborgarsvæðinu, en þar á meðal eru orlofsíbúðir á vegum stéttarfélaga eða aukaíbúðir sem engin langtímabúseta er í.

Samkvæmt nýrri húsnæðisáætlun Akureyrar er búist við að íbúum sveitarfélagsins muni fjölga um 200-250 á hverju ári og að þörf sé á uppbyggingu tæplega 200 íbúða á hverju ári á tímabilinu 2026-2035. Í fyrra urðu hins vegar aðeins 104 íbúðir fullbúnar í sveitarfélaginu.

Hægt er að nálgast glærur af kynningu HMS á fundinum með því að smella  á hnappinn hér að neðan.

Staða húsnæðismála á Norðurlandi eystra

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS