30. maí 2024

Fasteignamat 2025

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

HMS hefur kynnt fasteignamat fyrir árið 2025, en samkvæmt því hækkar heildarmat fasteigna um 4,3% frá núverandi mati og verður 15,3 billjónir króna. Á vefnum https://leit.fasteignaskra.is er hægt að fletta upp nýju fasteignamati fyrir einstaka fasteignir.

Fasteignamat íbúða á höfuðborgarsvæðinu hækkar um 2,1% á milli ára, en hækkunin er 6,6% á landsbyggðinni. Mesta hækkunin er á fasteignamatinu í Flóahreppi (20,6%), Tálknafjarðarhreppi (20,0%) og í Skeiða- og Gnúpverjahreppi (19,8%). Fasteignamatið í Kjósarhreppi lækkar hins vegar um 1,5%.

Fasteignamat atvinnuhúsnæðis hækkar um 6,0% á landinu öllu, en hækkunin nemur 5,4% á höfuðborgarsvæðinu og 7,4% á landsbyggðinni. Fasteignamat sumarhúsa hækkar svo um 15,6% á landinu öllu.

Hér fyrir neðan má sjá upptöku af opnum fundi þar sem HMS kynnti helstu niðurstöður sínar úr fasteignamati 2025, ásamt því að greina frá stöðu íbúðauppbyggingar og horfum á húsnæðismarkaði.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS