29. ágúst 2024

Breytt húsaleigulög taka gildi í september

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Þann 1. september taka í gildi breytingar á húsaleigulögum sem ætlað er að bæta réttarstöðu leigjenda og auka húsnæðisöryggi
  • Vísitölutenging styttri samninga verður óheimil auk þess sem leigusölum verður óheimilt að segja upp ótímabundnum samningum án ástæðu
  • Leigjendur og leigusalar mega fara fram á breytingu á leigufjárhæð að ákveðnum skilyrðum uppfylltum

Um næstu mánaðarmót taka í gildi ný lög um breytingar á húsaleigulögum, en markmið breytinganna er að bæta réttarstöðu leigjenda og auka húsnæðisöryggi. Með breytingum verður vísitölutenging styttri samninga óheimil, auk þess sem skilyrði verða sett fyrir því að leigjendur eða leigusalar geti farið fram á breytingar á leigufjárhæð. Einnig verður leigusali að kanna hvort leigjandi ætli að nýta sér forgangsrétt og verður honum óheimilt að segja upp ótímabundinn samning án ástæðu.

Breytingarnar taka til samninga sem gerðir eru eftir þann tíma auk samninga sem eru endurnýjaðir eða framlengdir eftir þann tíma.

Vísi­tölu­teng­ing styttri samn­inga óheim­il

Ekki verður heimilt að semja um að leiguverð taki breytingum á samningstímanum ef um samning er að ræða sem er til 12 mánaða eða skemur. Þetta þýðir t.d. að vísitölutenging leigufjárhæðar er ekki lengur leyfileg þegar um er að ræða tímabundna samninga, nema að tímalengd þeirra sé 13 mánuðir eða lengri. Áfram verður heimilt að vísitölutengja ótímabundna samninga. Samningar um íbúðir lögaðila sem ekki er rekinn í hagnaðarskyni geta þó verið undanþegnir þessari reglu, t.d. námsmannaíbúðir og áfangaheimili.

Sem dæmi má taka að tímabundinn húsaleigusamningur til 12 mánaða getur ekki innihaldið ákvæði um breytingar á leiguverði skv. vísitölu neysluverðs. Samningur sem gerður er til 13 mánaða eða lengur getur þó innihaldið slíkt ákvæði, sem og samningar sem ekki hafa neina lokadagsetningu og eru þá ótímabundnir.

Breyt­ing­ar á leigu­fjár­hæð leyfi­leg­ar að ákveðn­um skil­yrð­um upp­fyllt­um

Með lagabreytingunum munu bæði leigjendur og leigusalar geta farið fram á breytingu á leiguverði eftir að tólf mánuðir eru liðnir frá undirritun samnings í þremur af eftirfarandi tilfellum:

  1. Ef leigusali er lögaðili og rekstrarkostnaður hans hækkar.
  2. Ef leigjandi eða leigusali vill samræma leiguverðið við markaðsverð á sambærilegu húsnæði.
  3. Ef óhagnaðardrifin leigufélög vilja jafna leigufjárhæð á sambærilegu húsnæði í þeirra eigu til að stuðla að fjölbreyttri samsetningu íbúa og félagslegri blöndun.

Í tilfellum 1 og 3 ber leigusala að tilkynna leigjanda um leiguhækkun með að minnsta kosti þriggja mánaða fyrirvara og hefur leigjandinn þá 30 daga til að tilkynna hvort hann samþykki hækkunina, vilji bera hana undir kærunefnd húsamála eða segja upp leigusamningi. Samskonar frestur gildir í tilfelli 2, komist leigjandi og leigusali ekki að samkomulagi.

Leigu­sali verð­ur að kanna hvort leigj­andi ætli að nýta sér for­gangs­rétt

Í núgildandi lögum eiga leigjendur sem leigja húsnæði tímabundið almennt forgangsrétt til áframhaldandi leigu húsnæðisins að leigutíma loknum, en með nýju lögunum er sú skylda lögð á leigusala að kanna hvort leigjandi hyggist nýta sér forgangsrétt til áframhaldandi leigu. Þegar húsaleigusamningur var gerður til skemmri tíma en þriggja mánaða ber leigusala að spyrja leigjanda áður en 30 dagar eru eftir af leigusamningnum, en þremur mánuðum sé samningurinn lengri. Leigjandi skal tilkynna leigusala innan 30 daga frá fyrirspurninni hvort hann ætli að nýta sér forgangsréttinn.

Upp­sögn ótíma­bund­inna samn­inga án ástæðu óheim­il

Samkvæmt gildandi lögum er leigusala frjáls uppsögn ótímabundins leigusamnings án sérstakrar ástæðu. Sú breyting er gerð að sérstakar ástæður þurfi að liggja fyrir til að leigusali geti sagt upp ótímabundnum samningi og að ástæður uppsagnar skuli tilkynntar með formlegum hætti. Leigjandi getur þá borið uppsögnina undir kærunefnd húsnæðismála. Þau atriði sem leigusali getur borið fyrir sig við uppsögn ótímabundinn samning eru listuð upp með tæmandi hætti í lögunum.

Nánar um skráningu leigusamninga.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS