13. maí 2026

Birgðatími stærstu fjölbýlisíbúðanna rúmlega þrefalt lengri en þeirra minnstu

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Kaupsamningum á fyrsta ársfjórðungi fækkaði um 11% á milli ára
  • Um sex mánuði tæki að selja allt framboð íbúða til sölu á höfuðborgarsvæðinu miðað við söluhraða síðasta mánaðar
  • Birgðatíminn er skemmstur fyrir minnstu fjölbýlisíbúðirnar á höfuðborgarsvæðinu en er lengri eftir því sem íbúðir stækka

Kaupsamningum fjölgaði á milli mánaða í mars en voru færri en á sama tíma í fyrra. Kaupsamningum á fyrsta ársfjórðungi fækkaði jafnframt á milli ára á sama tíma og framboð íbúða til sölu hefur aukist mikið undanfarin misseri. Birgðatími, þ.e. sá tími sem tæki að selja allt núverandi framboð miðað við söluhraða síðasta mánaðar, mælist nú rúmlega 6 mánuðir á höfuðborgarsvæðinu. Birgðatíminn er þó mislangur eftir stærð íbúða og mælist rúmlega þrefalt lengri fyrir stærstu fjölbýlisíbúðirnar á höfuðborgarsvæðinu samanborið við þær minnstu. Þetta er á meðal þess sem fjallað verður um í mánaðarskýrslu HMS fyrir maímánuð sem kemur út á fimmtudaginn í næstu viku.

Kaup­samn­ing­um fækk­aði á milli ára

Rétt tæplega þúsund kaupsamningar um íbúðarhúsnæði á landinu öllu voru gefnir út í mars síðastliðnum, samanborið við 807 samninga í febrúar. Þinglýstum kaupsamningum fjölgaði því um 23% á milli mánaða, sem er í samræmi við árstíðarsveiflu á markaðnum þegar líður á vorið. Umsvifin á markaðnum voru þó um það bil 12% minni heldur en í mars í fyrra þegar 1.113 kaupsamningum var þinglýst.

Kaupsamningum á fyrsta ársfjórðungi fækkaði jafnframt á milli ára. Alls 2.438 kaupsamningum um íbúðarhúsnæði var þinglýst á fyrstu þremur mánuðum þessa árs sem samsvarar tæplega 11% fækkun frá því á sama tímabili í fyrra þegar 2.727 kaupsamningum var þinglýst. Umsvifin voru jafnframt minni en á fyrsta ársfjórðungi ársins 2024, en nokkru meiri en á fyrsta ársfjórðungi ársins 2023.

Birgða­tími lengri með­al stærri íbúða

Birgðatími á höfuðborgarsvæðinu mældist rúmlega sex mánuðir í mars síðastliðnum, miðað við þriggja mánaða meðaltal, og hefur lengst mikið undanfarna mánuði. Birgðatíminn mældist álíka langur á landsbyggðinni en í nágrenni höfuðborgarsvæðisins mældist þriggja mánaða meðaltalið um 10 mánuðir í mars. Birgðatími gefur til kynna hversu marga mánuði það tæki að selja allt framboð af íbúðum til sölu ef söluhraði síðasta mánaðar héldist óbreyttur.

Birgðatími sérbýlisíbúða og fjölbýlisíbúða á höfuðborgarsvæðinu hefur verið áþekkur undanfarna mánuði en birgðatími er mislangur eftir stærðarflokkum fjölbýlisíbúða. Birgðatíminn er skemmstur fyrir minnstu íbúðirnar en lengist eftir því sem íbúðirnar stækka, líkt og sjá má á myndinni hér að neðan sem sýnir þriggja mánaða meðaltal birgðatíma fjölbýlisíbúða á höfuðborgarsvæðinu eftir stærðarflokkum.

Miðað við söluhraða síðasta mánaðar tæki um 3 mánuði að selja allt framboð af fjölbýlisíbúðum sem eru 60 fermetrar eða minni að stærð á meðan það tæki um 11 mánuði að selja allt framboð af íbúðum sem eru stærri en 120 fermetrar. Birgðatíminn mælist um 5,5 mánuðir fyrir 60 til 90 fermetra íbúðir og um 8 mánuðir fyrir 90-120 fermetra íbúðir.

Birgðatíminn hefur lengst fyrir alla stærðarflokka frá áramótum samhliða mikilli framboðsaukningu og færri kaupsamningum samanborið við undanfarin tvö ár. Birgðatíminn hefur þó lengst mest fyrir stærstu íbúðirnar þar sem hann hefur tvöfaldast á einu ári á sama tíma og birgðatími minnstu íbúðanna lengdist um 14%. Birgðatími 60 til 90 fermetra íbúða er tæplega 40% lengri nú en á sama tíma í fyrra og birgðatími 90 til 120 fermetra íbúða er um 66% lengri.

Í þessu samhengi er rétt að hafa í huga að hlutdeildarlánaúrræðið getur stuðlað að greiðari sölu minni íbúða. Frá áramótum hefur hins vegar að jafnaði 24 hlutdeildarlánum verið úthlutað á höfuðborgarsvæðinu í hverjum mánuði á sama tíma og að meðaltali um 230 kaupsamningum um fjölbýlisíbúðir sem eru allt að 90 fermetrar að stærð var þinglýst í hverjum mánuði á höfuðborgarsvæðinu. Það er því ólíklegt að hlutdeildarlánaúrræðið hafi haft mikil áhrif á birgðatíma minni íbúða að undanförnu.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS