

Ferli umhverfismats áætlana
Ferli umhverfismats áætlana
Umhverfismat áætlana er unnið samhliða mótun viðkomandi áætlunar.
Helstu áfangar
Í upphafi vinnu við áætlun sem háð er umhverfismati þarf að ákveða að hverju umhverfismatið skal beinast, umfang þess og áherslur.
Matslýsing er skrifleg greinargerð þar sem sett eru fram fyrirhugað umfang og áherslur umhverfismats. Ábyrgðaraðili viðkomandi áætlunar leitar umsagnar HMS um matslýsinguna samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Þá er æskilegt að matslýsingin hljóti víðtækari kynningu fyrir almenningi og opinberum aðilum.
Ekki þarf að útbúa sérstaka matslýsingu vegna skipulagsáætlana sveitarfélaga. Þar er gert ráð fyrir því að í lýsingu skipulagsverkefnisins, þar sem gerð er grein fyrir áformaðri skipulagsgerð, sé jafnframt gerð grein fyrir því hvernig fyrirhugað er að standa að umhverfismati skipulagstillögunnar. Matslýsing skipulagsverkefnis er kynnt í Skipulagsgátt.
Fyrir aðra áætlanagerð, svo sem kerfisáætlun, rammaáætlun og samgönguáætlun, þarf almennt að útbúa sérstaka matslýsingu.
Vinna að skal að umhverfismati áætlunar samhliða og sem hluta af mótun hennar. Þá gefst meðal annars tækifæri til að nýta umhverfismatið til að greina og velja á milli ólíkra valkosta.
Kynna þarf endanlega tillögu að áætlun ásamt umhverfismati hennar áður en áætlunin er endanlega afgreidd. Umhverfismat skipulagsáætlunar er kynnt með skipulagsgögnum í Skipulagsgátt.
Umhverfismat áætlunar er sett fram í umhverfismatsskýrslu og getur skýrslan staðið sem sjálfstæð greinargerð og þá sem fylgiskjal viðkomandi áætlunar. Umhverfismatsskýrslan getur líka verið felld inn í viðkomandi áætlun að fullu leyti eða hluta, til dæmis sem sérstakur kafli um umhverfismat áætlunarinnar.
Við endanlega afgreiðslu áætlunar:
- Ber að hafa hliðsjón af umhverfismatsskýrslu og athugasemdum sem borist hafa við tillögu að áætlun og umhverfismatsskýrslu.
- Skal gerð samantekt um hvernig umhverfissjónarmið hafa verið felld inn í áætlunina með hliðsjón af umhverfismatsskýrslu, umsögnum og athugasemdum við tillögu að áætlun og umhverfismatsskýrslu.
- Þarf að liggja fyrir hvernig fyrirhugað er að fylgjast með umhverfisáhrifum af framfylgd áætlunarinnar.
Kynna þarf endanlega ákvörðun og meðfylgjandi gögn umsagnaraðilum og hafa aðgengileg almenningi.