Kynning á verkefnum Asks - mannvirkjarannsóknasjóðs

location-svg

Borgartún 21

14:00

Upplýsingar

location-svg

Borgartún 21

14:00

28

jan.

HMS boðar til viðburðar vegna opnunar vefsíðu með kynningum á verkefnum styrkþega Asks - mannvirkjarannsóknasjóðs. Á viðburðinum munu sömuleiðis nokkrir styrkþegar fyrri ára kynna niðurstöður rannsókna sinna.

Viðburðurinn verður haldinn í húsakynnum HMS, Borgartúni 21, þriðjudaginn 28. janúar klukkan 14:00-16:00. Fundinum verður einnig streymt á hms.is/streymi.

Dag­skrá

  • 14:00 – 14:05 Inngangur fundarstjóra - dr. Sigríður Ósk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri umhverfismála hjá Hornsteini.
  • 14:05 – 14:15 Ávarp - Hermann Jónasson, forstjóri HMS
  • 14:15 – 14:25 Ávarp - dr. Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir, stundakennari Háskólanum í Reykjavík, í verkefnahópi Byggjum grænni framtíð
  • 14:25 – 14:35 Ávarp - Halla Helgadóttir, frkv.stj. Hönnunarmiðstöðvar
  • 14:35 – 14:45 Útgáfa styrkhafa - Hrafnhildur Sif Hrafnsdóttir, verkefnisstjóri Asks HMS
  • 14:45 – 15:00 Þekking á uppsprettum raka í byggingum á norðurslóðum - dr. Dórótea Höeg Sigurðardóttir, lektor HÍ
  • 15:00 – 15:15 Hringrásanlegt léttfylliefni í steinsteypu frá Rockpore - Sunna Ólafsdóttir Wallevik, framkvæmdastjóri Gerosion / dr. Kristján Friðrik Alexandersson. Rannsóknar- og þróunarstjóri Gerosion
  • 15:15 – 15:30 Háteigsvegur 59 - Arnhildur Pálmadóttir, Lendager á Íslandi
  • 15:30 – 15:45 Orkunýting hönnuð og mæld - dr. Jónas Þór Snæbjörnsson, prófessor Háskólanum í Reykjavík
  • 15:45-16:00 Híbýlaauður - Anna María Bogadóttir, arkitekt hjá Úrbanistan og lektor við Listaháskóla Íslands

Fundarstjóri: dr. Sigríður Ósk Bjarnadóttir, í verkefnisstjórn BGF og framkvæmdastjóri umhverfismála hjá Hornsteini.

Skráning á viðburð

Vinsamlegast skráið þátttöku á viðburðinn