Útgáfa á leiðbeiningum um ljósvist
Borgartún 21
10:00-11:15
Upplýsingar
Borgartún 21
10:00-11:15
29
maí
HMS vekur athygli á opnum kynningarfundi vegna útgáfu nýrra leiðbeininga um bæði ljósvist fyrir skipulagsgerð og ljósvist í byggingarreglugerð, sem verður haldinn 29. maí kl. 10:00-11:15.
Fundurinn er opinn öllum á meðan húsrúm leyfir og er þess óskað að fólk skrái sig með því að smella á hnappinn hér að neðan. Fundinum verður jafnframt streymt á vefsíðu HMS.
Nýlegt ákvæði um ljósvist í byggingarreglugerð, kallar á markvissa beitingu skipulags frá upphafi og nýtingu góðra og sannreyndra lausna á öllum stigum ferlisins, frá skipulagi til hönnunar og framkvæmdar. Leiðbeiningunum er ætlað að styðja við innleiðingu nýrra ákvæða í byggingarreglugerð.
Þýðing ljóss og birtu hefur lengi verið okkur hugleikin. Komið er inn á mikilvægi ljósvistar í grein Bríetar Bjarnhéðinsdóttir „Heilsan“ í Kvennablaðinu árið 1897 og riti Guðmundar Hannessonar Um skipulag bæja árið 1921. Þar endurspeglast gömul sannindi og ný um að gæði ljósvistar eru einn af lykilþáttum í lífsgæðum fólks.
Útgáfa á leiðbeiningum um ljósvist
Dagskrá
Opnun fundar (10:00-10:02)
Kristján Andri Jóhannsson, fundarstjóri
Ljósvist og gæði í skipulagi (10:02-10:15)
Ólafur Árnason, framkvæmdastjóri skipulags- og umhverfismatssviðs hjá HMS
Leiðbeiningar um ljósvist í skipulagi (10:15-10:30)
Borghildur Sölvey Sturludóttir, arkitekt í teymi starfsumhverfis skipulags hjá HMS
Leiðbeiningar um ljósvist í byggingarreglugerð (10:30-10:45)
Elín Þórólfsdóttir, teymisstjóri mannvirki og eftirlit hjá HMS
Umræður í pallborði (10:45-11:15)
Anna Sigríður Jóhannsdóttir, dósent í arkitektúr, Listaháskóli Íslands, Auður Dagný Kristinsdóttir, skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar, Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs Samtök Iðnaðarins, Magnea Þ. Guðmundsdóttir arkitekt Teiknistofan Stika.
Húsið opnar kl. 9:30 og boðið verður upp á hressingu á meðan á fundi stendur.
