Þróun og framtíðarhorfur íbúðamarkaðar, bygginga- og skipulagsmála á Vesturlandi
Dalbraut 1 á Akranesi
12:00-13:00
Upplýsingar
Dalbraut 1 á Akranesi
12:00-13:00
13
nóv.
Föstudaginn 13. nóvember halda HMS og Tryggð byggð í samstarfi við SSV opinn fund um þróun og framtíðahorfur íbúðamarkaðar, bygginga og skipulagsmála á Vesturlandi. Fundurinn verður haldinn í Tónlistarskólanum, Dalbraut 1 á Akranesi, kl. 11:45 og er opinn öllum.
Á fundinum verður meðal annars fjallað um atvinnuþróun í landsbyggðunum, stöðuna á íbúðamarkaði og stöðu innleiðingar nýs viðmóts byggingarleyfa og næstu skref við þróun viðmótsins. Einnig það helsta sem er á döfinni í skipulagsmálum, eftirlitsmálum í mannvirkjagerð og tillögum að breytingum ásamt því að farið verður yfir starfsemi slökkviliða.
Dagskrá
Staðan á Akranesi
Sturlaugur Haraldsson, bæjarstjóri Akraneskaupstaðar
Íbúðauppbygging og framtíðarhorfur
Jónas Atli Gunnarsson, hagfræðingur hjá HMS
Mannvirkjaskrá
Unnur Björnsdóttir, teymisstjóri hugbúnaðarþróunar hjá HMS
Skipulagsmál – helst á döfinni
Ólafur Árnason, framkvæmdastjóri skipulags og umhverfismats hjá HMS
Breytt byggingareftirlit og einföldun regluverks
Jörundur Ragnar Blöndal, teymisstjóri öryggis og eftirlits mannvirkja hjá HMS
Fundarstjóri verður Páll Snævar Brynjarsson, framkvæmdastjóri SSV.
Húsið opnar kl. 11:30 og verður boðið upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur. Fundargestum er boðið samtal við frummælendur eftir fundinn.
Við bjóðum öll velkomin á fundinn og hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
