Þróun og framtíðarhorfur íbúðamarkaðar, bygginga- og skipulagsmála á Suðurlandi
Brúarstræti 12a á Selfossi
11:45-12:45
Upplýsingar
Brúarstræti 12a á Selfossi
11:45-12:45
26
nóv.
Fimmtudaginn 26. nóvember halda HMS og Tryggð byggð í samstarfi við SASS opinn fund um þróun og framtíðahorfur íbúðamarkaðar, bygginga og skipulagsmála á Suðurlandi. Fundurinn verður haldinn á Fröken Selfossi, Brúarstræti 12a á Selfossi, kl. 11:45 og er opinn öllum.
Á fundinum verður meðal annars fjallað um atvinnuþróun í landsbyggðunum, stöðuna á íbúðamarkaði og stöðu innleiðingar nýs viðmóts byggingarleyfa og næstu skref við þróun viðmótsins. Einnig það helsta sem er á döfinni í skipulagsmálum, eftirlitsmálum í mannvirkjagerð og tillögum að breytingum.
Dagskrá
Staðan í Árborg
Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Árborgar
Íbúðauppbygging og framtíðarhorfur
Kristín Amalía Líndal, hagfræðingur hjá HMS
Mannvirkjaskrá
Auður Ævarr Sveinsdóttir, verkefnastjóri mannvirkjaskrár hjá HMS
Skipulagsmál – helst á döfinni
Ólafur Árnason, framkvæmdastjóri skipulags og umhverfismats hjá HMS
Breytt byggingareftirlit og einföldun regluverks
Jörundur Ragnar Blöndal, teymisstjóri öryggis og eftirlits mannvirkja hjá HMS
Fundarstjóri verður Lína Björg Tryggvadóttir, verkefnastjóri byggðamála hjá SASS
Húsið opnar kl. 11:30 og verður boðið upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur. Fundargestum er boðið samtal við frummælendur eftir fundinn.
Við bjóðum öll velkomin á fundinn og hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
