Styrkhafar Asks á Iðnaðarsýningunni

location-svg

Laugardalshöll

Upplýsingar

location-svg

Laugardalshöll

31 - 2

ágúst - sep.

Styrkhafar Asks á Iðnaðarsýningunni

location-svg

Laugardalshöll

Upplýsingar

location-svg

Laugardalshöll

31 - 2

ágúst - sep.

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun mun veita styrkhöfum Asks - mannvirkjarannsóknasjóðs vettvang til að sýna verkefni sín á Iðnaðarsýningunni 2023 sem haldin verður í Laugardalshöll 31. ágúst – 2. september 2023 idnadarsyningin.is

Margir styrkhafar Asks kynna ennfremur verkefni sín á CIRCON ráðstefnunni sem ber heitið Hringrás í byggingariðnaði: erum við tilbúin í stökkið? og verður haldin í Laugardalshöll föstudaginn 1. september kl. 9.30 - 15.30.

Þátttakendur á eftirfarandi viðburðum fá boðsmiða á Iðnaðarsýninguna:

Tvö hundruð boðsmiðar á Iðnaðarsýninguna verða ennfremur afhentir í afgreiðslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, Borgartúni 21.

Opnunartími Iðnaðarsýningarinnar er sem hér segir:

  • Fimmtudagur 31. ágúst kl. 14:00 - 19:00
  • Föstudagurinn 1. september, kl. 10:00 - 18:00, þar verður CIRCON hringrásarráðstefnan kl. 9:30 - 15:30.
  • Laugardagur 2. september, kl. 10:00 - 17:00

Askur veitir styrki til mannvirkjarannsókna með áherslu á aukna þekkingu, umbætur og nýsköpun til að mæta samfélagslegum áskorunum í mannvirkjagerð. Sjóðurinn heyrir undir Innviðaráðuneytið og er einnig fjármagnaður af háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu en daglegur rekstur hans er í höndum HMS.

Askur hefur reynst mikilvægt hreyfiafl í mannvirkjaiðnaðinum og eru verkefni sjóðsins til vitnis um þau tímamót sem byggingariðnaðurinn stendur á varðandi vistvænar áherslur. Hringrásarhagkerfið, endurnýting byggingarefna, notkun á vistvænum efnum og þær áherslur að finna leiðir til að vinna með efni í nærumhverfinu, koma sterkt fram í verkefnum Asksins sem verða sýnd á Iðnaðarsýningunni 2023.

Askur hefur veitt styrki í tvígang árin 2021 og 2022. Auglýst verður eftir umsóknum í Ask fyrir styrkárið 2023 í lok septembermánaðar n.k.

Á sýningunni í Laugardalshöll verða sýnd plaköt með stuttri lýsingu á öllum verkefnum styrkhafa Asks en nokkrir styrkhafar sem vinna að hringrásarhönnun, rannsóknum á byggingarefnum og tækninýjungum munu sérstaklega sýna viðfangsefni sín.

Styrkþegar Asks sem sýna verkefni sín á Iðnaðarsýningunni eru:

  • Narfi Þorsteinsson sýnir verkefni sitt Rúststeinar sem felst í rannsóknum á steypu úr byggingum sem sem verða rifnar niður. Annars vegar snýr verkefnið að því að framleiða Rúststeina og hlaða úr þeim skúlptúr og hins vegar að skoða frekari möguleika á endurnýtingu þeirra, sjá vefsíðuna Narfi
  • Biobuilding er rannsókna og þróunarverkefni á hampi sem byggingarefni í hús. Hampur er vistvænt efni sem hægt er að rækta hérlendis, sjá vefsíðuna Biobuilding og nánar um verkefnið hér.
  • Eyþór Rafn Þórhallsson hjá Háskólanum í Reykjavík stýrir rannsóknum á Bláþræði sem er efni út basalttrefjum sem getur leyst steypustyrkarjárn af hólmi og er mun umhverfisvænna, hann sýnir einnig rannsóknir á krosslímdum timbureiningum.
  • Gústaf Adolf Hermannsson verkfræðingur sýnir sömuleiðis efnisprufur úr rannsókn á krosslímdum timbureiningum sem hann framkvæmdi í tengslum við M.Sc. lokaritgerð í byggingareðlisfræði frá Build deildinni (SBI) í Álaborgar Háskólanum í Danmörku.
  • Anna María Bogadóttir sem er styrkhafi hjá Aski í verkefninu Híbýlaauður mun sýna klippu úr mynd sínni Jarðsetning, sjá vefsíðuna urbanistan.is/jardsetning.
  • Jóhannes Loftsson sýnir uppfinningu á afar nettu loftræstikerfi, sjá vefsíðuna breatherventilation.com.
  • Cubit Building Company sýnir byggingareiningu sem Aðalsteinn Snorrason arkitekt og Gautur Þorsteinsson verkfræðingur hafa þróað þannig að einfalt sé að setja saman einingar og taka í sundur einingar. Þannig verða hús hönnuð með tiliti til þess að hægt sé að byggja þau úr einingum, breyta þeim, endurnýta þau eða skapa þeim nýjan tilgang.
  • Arnhildur Pálmadóttir arkitekt hjá Lendager á Íslandi sýnir teikningar sem hannaðar eru með hringrásarhugsun í huga, sjá vefsíðuna lendager.com.
  • Steypusérfræðingar munu sýna rannsóknaraðferðir sýnar sem miða að því að gera steypu umhverfisvænni. Sigríður Ósk Bjarnadóttir framkvæmdastjóri umhverfis- og gæðasviðs hjá Hornsteini , Ólafur Wallevik prófessor hjá Háskólanum í Reykjavík og Kristján Friðrik Alexandersson hjá Gerosion, sýna aðferðir við rannsóknir á vistvænni steypu, sjá vefsíðurnar hornsteinn.is og gerosion.is. Tæknisetur mun leggja þeim til víðsjá til skoðunar á steypusýnum, sjá vefsíðuna taeknisetur.is.
  • Rósa Dögg Þorsteinsdóttir sýnir vefsíðuna vistbok.is sem er vefsíða með upplýsingum um umhverfisvænar byggingarvörur.
  • Ásgeir Valur Einarsson hjá Iðunni - fræðslusetri sem rannsakar loftþéttleikapróf bygginga hjá Aski verður í Byko básnum þar sem gefst kostur á að sjá hann framkvæma tilraunina, sjá vefsíðuna idan.is.
  • HMS bauð einnig Kristínu Sigurðardóttur ásamt Birtu og Hrefnu hjá Stúdíó fléttu að sýna hluta af sýningu sinni sem ber heitið Íslenska glerið um nýtingu umfram efna frá framleiðslu steinullar á Íslandi, sjá vefsíðuna studiofletta.is
  • HMS bauð einnig Skógræktinni, Skógræktarfélagi Íslands, Bændasamtökum Íslands, Trétækniráðgjöf ehf., Iðunni - fræðslusetri og Landbúnaðarháskóla Íslands að sýna prufur af íslensku timbri sem byggingarefni en hagnýting slíks efnis og frekari tilraunir eru hluti af verkefnum nokkurra styrkhafa hjá Aski., sjá vefsíðurnar skogur.is, skog.is, bondi.is, timbur.is, idan.is og lbhi.is.

Við vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta enda gríðarlega spennandi dagskrá fyrir höndum á Iðnaðarsýningunni og CIRCON ráðstefnunni, sjá nánari upplýsingar um CIRCON verkefnið á vefsíðu Grænni byggðar.

Að lokum viljum við færa Steypustöðinni sérstakar þakkir fyrir að lána okkur Villa hleðslustein sem undirstöðu í borð og hillur á sýningu Asks, sjá vefsíðuna steypustodin.is Kai Wesphal starfsmaður Steypustöðvarinnar er enda þátttakandi í Asks - verkefnum. Byko veitti einnig afslátt af Heraklith plötum og járnamottum til að mynda umgjörð um sýninguna, sjá vefsíðuna byko.is.