Skipulagsdagurinn 2026

location-svg

Grand hótel

9:00-16:00

Upplýsingar

location-svg

Grand hótel

9:00-16:00

5

nóv.

Skipulagsdagurinn 2026 fer fram þann 5. nóvember, kl 9-16 í Háteig á Grandhótel og í beinu streymi. Hús opnar kl 8:30. Fundarstjóri verður Bergsteinn Sigurðsson.

Dagskrá

9.00 Opnun fundar, Bergsteinn Sigurðsson, fundarstjóri 

9.05 Ávarp ráðherra, Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra

9.15 Inngangsorð Ólafs Árnasonar, framkvæmdarstjóra skipulags- og umhverfismatssviðs HMS 

 

Samþætting skipulagsmála og húsnæðisáætlana

 

9.35 Samþætting skipulagsmála og húsnæðisáætlana, Elmar Erlendsson, framkvæmdastjóri húsnæðissviðs HMS.

9.45 Reykjavík einfaldar: Hvernig borgin getur einfaldað ferla, aukið fyrirsjáanleika, stytt afgreiðslutíma og bætt þjónustu við íbúa, hönnuði og uppbyggingaraðila, Guðný María Jóhannsdóttir, formaður umhverfis- og skipulagsráðs, Reykjavíkurborg.

9.55 Umræður í pallborði

Við hóp frummælenda bætast Pétur Ingi Haraldsson skipulagsfulltrúi hjá Akureyrarbæ, Þorvaldur Gissurarson forstjóri hjá ÞG verk.

10.25 Morgunhressing

 

Staða og þróun skipulagsmála og landnýtingar

 

10:55 Landnýting: Þróun í takt við markmið?, Tryggvi Már Ingvarsson, framkvæmdastjóri fasteignasviðs HMS.

11:05 Lykiltölur hins byggða umhverfis á höfuðborgarsvæðinu, Hrafnkell Proppé, skipulagsfræðingur, Urbana ráðgjöf.

11.15 Umræður í pallborði

Við hóp frummælenda bætast Ásdís Ólafsdóttir svæðisskipulagsstjóri hjá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, Herdís Sigurgrímsdóttir teymisstjóri skipulags hjá HMS.

11.45 Hádegisverður

13.00 Ávarp Sambands íslenskra sveitarfélaga, Arnar Þór Sævarsson, framkvæmdastjóri.

 

Aðlögun byggðar að loftslagsbreytingum

 

13.10 Skipulag og mannvirki, hvað grípur skipulagið og hvar tekur mannvirki við?, Elín Þórólfsdóttir, teymisstjóri starfsumhverfis mannvirkjagerðar, HMS

13.20 Blágrænn Grundarfjörður, Nanna Vilborg Harðardóttir, verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála, Grundarfjarðarbæ.

13:30 Umræður í pallborði

Við hóp frummælenda bætast Gunnar Páll Eydal umhverfis- og auðlindafræðingur og skipulagsfræðingur hjá Verkís, Finnur Ricart Andrason sérfræðingur í umhverfismálum hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Hulda Ragnheiður Árnadóttir forstjóri, Náttúruhamfaratrygging Íslands.

14.00 Síðdegishressing

 

Menningarlandslag, ásýnd byggðar í dreifbýli og þéttbýli

 

14.30 Borgin sem við mótum, Borgarhönnunarstefna Reykjavíkur Rebekka Guðmundsdóttir, deildarstjóri borgarhönnunar og borgarhönnuður, Reykjavíkurborg.

14:40 Menningarlandslag: ókortlögð verðmæti, Birna Lárusdóttir fornleifafræðingur.

14:50 Umræður í pallborði

Við hóp frummælenda bætast Dr. Harpa Stefánsdóttir prófessor í skipulagsfræði hjá LBHÍ, Sigríður Björk Jónsdóttir verkefnastjóri deiliskipulags hjá HMS, Þórhildur Þórhallsdóttir landslagsarkitekt hjá Landmótun.

15:20 Lokaorð

15.30 Ráðstefnulok – léttar veitingar.

Fagfólk, kjörnir fulltrúar og allt áhugafólk um skipulag er hvatt til að taka daginn frá. Þátttökugjald er 10.000 krónur en innifalin er morgunhressing, hádegisverður og síðdegishressing. Þátttökugjald fyrir nema er 5.000 krónur.  

Uppselt er á viðburðinn en hægt að skrá sig á biðlista. Minnum einnig á streymi og hægt verður að senda inn spurningar á vefformi. Fundarstjóri mun opna á spurningar úr sal í hverju pallborði fyrir sig.

Skrá mig á biðlista