Öruggt húsnæði með stuðningi stjórnvalda - opinn fundur
Borgartún 21
13:00
Upplýsingar
Borgartún 21
13:00
27
jan.
Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra ávarpar fund um öruggt húsnæði byggt með stuðningi stjórnvalda.
HMS boðar til opins fundar mánudaginn 27. janúar kl. 13:00.
Upptaka af fundinum
Á fundinum verður fjallað um stuðning stjórnvalda við uppbyggingu á húsnæði. Það er mikilvægt samfélagslegt og efnahagslegt verkefni að tryggja nægt aðgengi að öruggu húsnæði á viðráðanlegu verði og auka þannig húsnæðisöryggi tekjulægri hópa.
Fundurinn verður haldinn í HMS í Borgartúni 21 og stendur í um eina klukkustund.
Boðið verður upp á léttar veitingar og verður fundinum einnig streymt á hms.is/streymi.
Vonumst til að sjá þig.
Dagskrá:
- Ávarp ráðherra
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra - Íbúðir á viðráðanlegu verði - hvernig fjölgum við þeim?
Elmar Erlendsson, framkvæmdastjóri húsnæðissviðs HMS - Reynslusaga uppbyggingaraðila
Björn Traustason, framkvæmdastjóri Bjargs íbúðafélags
Fundarstjóri: Róbert Smári Gunnarsson, sérfræðingur hjá HMS
Skráning á fundinn
Vinsamlegast skráið þátttöku á viðburðinn