Opnun Rb- og leiðbeiningagáttar, nýtt Rb-blað
HMS. Borgartúni 21
12:15-13:00
Upplýsingar
HMS. Borgartúni 21
12:15-13:00
5
nóv.
Útgáfuviðburður: Opnun Rb- og leiðbeiningagáttar, nýtt Rb-blað og fræðsla
HMS býður áhugasömum á útgáfuviðburð í Borgartúni 21, þriðjudaginn 5. nóvember 2024 kl. 12:15-13:00. Einnig verður hægt að fylgjast með viðburðinum í opnu streymi á heimasíðu HMS.
Tilefni viðburðarins er opnun Rb-gáttar, leiðbeiningagáttar og útgáfa nýs Rb-blaðs.
Markmiðið er að efla samstarf HMS við byggingarmarkaðinn varðandi gerð leiðbeininga, fræðslu og miðlun.
Rb-gáttin snýr að gerð Rb-blaða en leiðbeiningagáttin að gerð leiðbeininga við byggingarreglugerðina.
Rb-blöðin eiga sér langa og merka sögu enda skipa þau stóran sess í fræðslu og miðlun þekkingar í mannvirkjagerð. Á þriðjudaginn mun fyrsta Rb-blaðið í nýrri útgáfuröð HMS vera gefið út. Umfjöllunarefnið er meðferð byggingarvara.
Dagskrá:
RB-blöð, RB-gátt og fræðsluefni
Gústaf Adolf Hermannsson sérfræðingur HMS
Leiðbeiningargátt við byggingarreglugerð
Harpa Cilia Ingólfsdóttir sérfræðingur HMS
Fundarstjóri:
Elín Þórólfsdóttir Teymisstjóri Starfsumhverfi mannvirkjagerðar HMS
Viðburðinum verður streymt á www.hms.is/streymi